Fréttir

true

ÍA feykti Fjölni úr Mjólkurbikarnum

ÍA og Fjölnir áttust við í 1. umferð Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Skagakonur voru ekkert að tvínóna við hlutina í leiknum því strax á níundu mínútu leiksins kom Unnur Ýr Haraldsdóttir þeim yfir og það var síðan Ylfa Laxdal Unnarsdóttir sem bætti við öðru marki fyrir ÍA…Lesa meira

true

Fjölbreytt dagskrá á baráttudegi verkalýðsins

Í dag er 1. maí, baráttudagur verkalýðsins. Á vegum verkalýðsfélaganna er fjölbreytt dagskrá í boði. Í Borgarnesi hefst baráttufundur í Hjálmakletti klukkan 11 þar sem Stéttarfélag Vesturlands og Kjölur eru skipuleggjendur. Á Akranesi stendur Verkalýðsfélag Akraness fyrir dagskrá sem hefst með kröfugöngu klukkan 14 frá Þjóðbraut 1. Samkoma verður í sal Félags eldri borgara á…Lesa meira

true

Opinn stofn- og kynningarfundur Miðbæjarsamtakanna Akratorgs

Miðvikudaginn 4. maí klukkan 20 gangast Miðbæjarsamtökin Akratorg á Akranesi fyrir opnum fundi í Tónbergi, sal tónlistarskólans.  Þar mun Ólafur Páll Gunnarsson formaður Miðbæjarsamtakanna segja frá tilgangi samtakanna. Oddvitar framboðanna á Akranesi (B, D og S) og Sævar Þráinsson bæjarstjóri segja frá sinni framtíðarsýn varðandi miðbæinn. Bæjarlistamennirnir Eðvarð Lárusson og Valgerður Jónsdóttir bjóða upp á…Lesa meira

true

Áttatíu flóttamenn búnir að koma sér fyrir á Bifröst

Núna eru um 80 flóttamenn frá Úkraínu komnir á Bifröst og búnir að koma sér fyrir. Um bráðabirgðahúsnæði er að ræða meðan verið er að greiða götu fólksins varðandi framtíðar búsetu hér á landi. Að sögn Heiðrúnar Helgu Bjarnadóttur, verkefnastýru fyrir móttöku flóttafólksins, kom fólkið í þremur hollum, síðasti hópurinn kom síðastliðinn föstudag. „Við höfum…Lesa meira

true

Vísitala þorsks að hækka eftir lækkun í þrjú ár

Út er komin skýrsla Hafrannsóknastofnunar þar sem gerð er grein fyrir framkvæmd og helstu niðurstöðum stofnmælingar botnfiska á Íslandsmiðum sem fram fór dagana 28. febrúar til 24. mars á þessu ári. Niðurstöður eru bornar saman við fyrri ár, en verkefnið hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti ár hvert frá 1985. Þorskur að bæta sig Stofnvísitala…Lesa meira

true

StéttVest fordæmir hópuppsögn Eflingar

Trúnaðarráð Stéttarfélags Vesturlands samþykkti ályktun á fundi sínum í gær sem haldinn var í Alþýðuhúsinu í Borgarnesi. Þar kemur fram að trúnaðarráðið telji að stéttarfélög sem launagreiðendur, eigi að vera til fyrirmyndar og koma fram af lipurð og virðingu við starfsfólk sitt, á sama hátt og þau krefjast þess af öðrum launagreiðendum. „Trúnaðarráð Stéttarfélags Vesturlands…Lesa meira

true

Kjartan í stað Bjarka í stjórn SFV

María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistuheimilanna, var kjörin formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, SFV, á aðalfundi samtakanna sem fram fór á þriðjudaginn i liðinni viku. Hún tekur við af Birni Bjarka Þorsteinssyni, framkvæmdastjóra Brákarhlíðar í Borgarnesi, sem hverfur úr stjórn eftir tíu ára veru þar, nú síðast sem formaður. Nýr í stjórn kemur m.a. Kjartan Kjartansson…Lesa meira

true

Skagakonur hefja leik í Mjólkurbikarnum

ÍA og Fjölnir mætast í kvöld í fyrstu umferð Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu og fer leikurinn fram í Akraneshöllinni. ÍA leikur í sumar í fyrsta skipti í 2. deild á Íslandsmótinu en Fjölnir er deild ofar í Lengjudeildinni eftir að hafa komist upp í fyrra. Sigurvegarinn úr þessari viðureign fær heimaleik á móti annað hvort…Lesa meira

true

Óbreytt ráðgjöf í rækjuveiðum vegna skorts á rannsóknum

Hafrannsóknastofnun ráðleggur í samræmi við varúðarsjónarmið að rækjuafli á svæðinu við Snæfellsnes frá 1. maí 2022 til 15. mars 2023 verði ekki meiri en 393 tonn. „Engar nýjar upplýsingar liggja fyrir um stofnstærð rækju við Snæfellsnes þar sem ekki voru farnir stofnmælingaleiðangrar árin 2021 og 2022. Því er ekki hægt að uppfæra ráðgjöfina og er…Lesa meira

true

Rekstrarhagnaður Akraneskaupstaðar 721 milljón meiri en áætlað var

Ársreikningur Akraneskaupstaðar fyrir árið 2021 var lagður fram í bæjarráði þriðjudaginn 13. apríl síðastliðinn og var vísað til fyrri umræðu í bæjarstjórn Akraness sem fór fram síðastliðinn þriðjudag. Fram kemur á vef Akraneskaupstaðar að rekstrarniðurstaða ársins sé jákvæð um 578 milljónir króna sem er 721 milljónum króna betri afkoma en ráð var fyrir gert í…Lesa meira