{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í dag er 1. maí, baráttudagur verkalýðsins. Á vegum verkalýðsfélaganna er fjölbreytt dagskrá í boði. Í Borgarnesi hefst baráttufundur í Hjálmakletti klukkan 11 þar sem Stéttarfélag Vesturlands og Kjölur eru skipuleggjendur. Á Akranesi stendur Verkalýðsfélag Akraness fyrir dagskrá sem hefst með kröfugöngu klukkan 14 frá Þjóðbraut 1. Samkoma verður í sal Félags eldri borgara á Dalbraut 4. Einnig verða bíósýningar í boði fyrir börnin klukkan 13 og 16. (Sjá ítarlegri dagskrá þessara viðburða í auglýsingum í Skessuhorni vikunnar).\r\n\r\nEn það er barátta um athygli fólks þennan dag. Meðal annars halda framboð til sveitarstjórnakosninga víða fundi, firmakeppni hestamannafélagsins Dreyra verður á Æðarodda og minningartónleikar með Stuðmannaívafi verða í Reykholti.",
"innerBlocks": []
}
Fjölbreytt dagskrá á baráttudegi verkalýðsins - Skessuhorn