Opinn stofn- og kynningarfundur Miðbæjarsamtakanna Akratorgs
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Miðvikudaginn 4. maí klukkan 20 gangast Miðbæjarsamtökin Akratorg á Akranesi fyrir opnum fundi í Tónbergi, sal tónlistarskólans. Þar mun Ólafur Páll Gunnarsson formaður Miðbæjarsamtakanna segja frá tilgangi samtakanna. Oddvitar framboðanna á Akranesi (B, D og S) og Sævar Þráinsson bæjarstjóri segja frá sinni framtíðarsýn varðandi miðbæinn. Bæjarlistamennirnir Eðvarð Lárusson og Valgerður Jónsdóttir bjóða upp á tónlist eftir Skagamenn. Loks mun Páll Jakob Líndal doktor í umhverfissálfræði tala um áhrif umhverfis á líðan fólks. Bjarnheiður Hallsdóttir stýrir umræðum.",
"innerBlocks": []
}
Opinn stofn- og kynningarfundur Miðbæjarsamtakanna Akratorgs - Skessuhorn