Fréttir

true

Baldur uppfyllir ekki öryggisþætti nútíma ferja

Í ljósi umfjöllunar um Breiðafjarðarferjuna Baldur í þætti Kveiks í Ríkissjónvarpinu senda sveitarfélögin á sunnanverðum Vestfjörðum, Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur frá sér eftirfarandi yfirlýsingu: „Í þættinum var ömurlegt ástand skipsins sýnt, bæði hvað varðar öryggismál sem og almennan aðbúnað. Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur hafa ítrekað bent á þá staðreynd fyrir daufum eyrum að Breiðafjarðarferjan Baldur uppfylli ekki…Lesa meira

true

Fjórða umhverfing verður á Vestfjörðum, Ströndum og í Dölum

Á komandi sumri verður fjölmennasta og víðfeðmasta myndlistarsýning sem haldin hefur verið á Íslandi opnuð. Sýningin ber heitið Nr4 Umhverfing og er hún sú fjórða í röðinni sem Akademía skynjunarinnar stendur fyrir, en áður hefur hún staðið fyrir sýningum á Sauðárkróki (2017), Fljótsdalshéraði (2018) og á Snæfellsnesi (2019). Auglýst var eftir þátttöku myndlistarmanna sem starfa…Lesa meira

true

ÍA komið í úrslit Lengjubikarsins

ÍA og Sindri mættust í gær í undanúrslitum í C deild kvenna í knattspyrnu og fór leikurinn fram í Akraneshöllinni. Erna Björt Elíasdóttir kom Skagastúlkum á blað strax á annarri mínútu en á 21. mínútu jafnaði Samira Suleman metin fyrir gestina og staðan því jöfn í hálfleik. Unnur Ýr Haraldsdóttir kom ÍA aftur yfir eftir…Lesa meira

true

Fuglaflensa staðfest hér á landi

Fuglaflensa hefur verið staðfest í þremur villtum fuglum á landinu sem fundist hafa undanfarna daga. Um er að ræða heiðagæs við Hornafjörð, hrafn á Skeiðum í Árnessýslu og súlu rétt við Strandarkirkju við Suðurstandarveg. Þá hafa heimilishænsni á bóndabæ á Skeiðum, þar sem hrafninn fannst, sýnt sjúkdómseinkenni og voru fuglarnir allir aflífaðir um liðna helgi.…Lesa meira

true

Grjóthrun úr Búlandshöfða

Grjóthrun varð úr Búlandshöfða á Snæfellsnesi síðdegis í gær. Vegagerðin fékk tilkynningu frá vegfarendum og fór starfsmaður hennar á vettvang og sá strax að kalla þyrfti til stórvirka vinnuvél til að fjarlægja ferlíkið. Áætluð þyngd þess var rétt undir fimm tonnum og þykir mikil mildi að enginn hafi verið á ferð þegar það féll. Guðjón…Lesa meira

true

Akraneskaupstaður fær málverk að gjöf

Í tilefni 80 ára afmælis Akraneskaupstaðar á þessu ári færðu hjónin Ingibjörg Steinunn Ingjaldsdóttir og Guðmundur Ragnar Guðmundsson, eigendur Prentmets Odda, kaupstaðnum að gjöf mynd af Bíóhöllinni á Akranesi eftir listamanninn Baska, Bjarna Skúla Ketilsson. Fram kemur á vefsíðu Akraneskaupstaðar að Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri hafi tekið við málverkinu fyrir hönd bæjarins og þakkað þeim…Lesa meira

true

Hannes Hólmsteinn fjallar um stjórnspeki Snorra

Þriðjudaginn 19. apríl kl. 20 flytur Hannes H. Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti. Ber hann yfirskriftina: „Stjórnspeki Snorra Sturlusonar“. Fyrirlesturinn, sem er hluti af fyrirlestraröðinni „Fyrirlestrar í héraði“, er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. Hannes skipaði Snorra Sturlusyni fremst í tveggja binda rit sitt, Twenty-Four Conservative-Liberal Thinkers,…Lesa meira

true

Skrifstofan lokuð fram yfir páska

Næsta blað af Skessuhorni kemur út miðvikudaginn 20. apríl, síðasta vetrardag. Það verður með sumarþema, að hluta forskrifað blað með efni sem tengist árstímanum. Skrifstofa Skessuhorns verður lokuð alla páskahelgina, frá skírdegi 14. apríl til og með 18. apríl. Greinar til birtingar í blaðinu eftir páska sendist á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is og auglýsingar til birtingar á…Lesa meira

true

Yfirkjörstjórn Akraness skipuð vegna kosninganna

Á bæjarstjórnarfundi Akraness í gær voru samþykktar tilnefningar um skipan í yfirkjörstjórn Akraness vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Aðalfulltrúar eru þau Geir Guðjónsson frá Samfylkingunni, Valdimar Axelsson frá Sjálfstæðisflokknum og Karitas Jónsdóttir frá Framsókn og frjálsum. Varafulltrúar eru Ingibjörg Valdimarsdóttir, (S) Brynjar Sigurðsson (D) og Hlini Baldursson (B). Þá segir í fundargerð að Bæjarstjórn Akraness veiti bæjarráði…Lesa meira

true

Kristfríður Rós nýr íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Snæfellsbæjar

Kristfríður Rós Stefánsdóttir hefur verið ráðin í starf íþrótta- og æskulýðsfulltrúa Snæfellsbæjar og tekur við starfinu af Laufeyju Helgu Árnadóttur sem lætur af störfum um miðjan maí. Þetta kemur fram á vefsíðu Snæfellsbæjar. Í febrúar var auglýst eftir umsóknum um starf íþrótta- og æskulýðsfulltrúa Snæfellsbæjar og komu fimm afar góðar umsóknir um starfið. Að loknu…Lesa meira