
Á fundi bæjarstjórnar Stykkishólms síðastliðinn fimmtudag var tekið fyrir málefni Breiðafjarðarferjunnar Baldurs. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hafði óskað eftir umsögn Stykkishólmsbæjar um tillögu til þingsályktunar um kaup á nýrri Breiðafjarðarferju. Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar segist taka undir þingsályktunina en vill leggja áherslu á umhverfisvæna kosti bæði sem bráðabirgðalausn og til lengri tíma. „Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar vekur athygli á…Lesa meira








