Fréttir

true

Sólardagar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Nemendur og kennarar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði brutu upp skólastarfið með svokölluðum sólardögum í síðustu viku. Þá var dagskráin frekar óhefðbundin og bryddað upp á ýmsum nýjungum sem varla teljast til hefðbundins námsefnis. Til dæmis var keppt í hinum ýmsu greinum eins og boccia, pílukasti, skák, félagsvist og ýmsum spilum. Krökkunum gafst tækifæri á…Lesa meira

true

Asahláka á öskudegi

Það gefur ekkert sérlega vel fyrir börn í söng- og nammiferðir í dag. Gul viðvörun er í gildi fyrir Faxaflóasvæðið fram til klukkan þrjú í dag; spáð suðaustan 15-23 m/s með snörpum vindhviðum við fjöll. Einnig verður rigning og talsverð snjóbráð og er fólk hvatt til að huga að niðurföllum. Í dag þarf því allt…Lesa meira

true

Torgið hárstofa verður opnuð á morgun

Torgið hárstofa verður opnuð við Akratorg á Akranesi á morgun, fimmtudaginn 3. mars. Það eru þær Ólöf Una Ólafsdóttir og Ína Dóra Ástríðardóttir sem opna stofuna. Þær voru á fullu að undirbúa opnun þegar blaðamaður Skessuhorns leit inn til þeirra síðastliðinn mánudag. Ólöf og Ína Dóra eru Skagamönnum vel kunnar en þær hafa báðar starfað…Lesa meira

true

Vinnusmiðja um móttöku skemmtiferðaskipa á Akranesi

Áfanga- og markaðssvið (Á&M) Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, Akraneskaupstaður og Faxaflóahafnir taka nú þátt í samstarfsverkefni um gæði móttöku skemmtiferðaskipa á Akranesi. Verkefnið heitir Nora og kemur í gegnum Ferðamálastofu og er samstarfsverkefni við The Association of Arctic Expedition Cruise Operators (AECO). Markmið verkefnisins er að heimamenn í hverri höfn leggi línur um hvernig þeir…Lesa meira

true

Fjögur hús á Akranesi fara brátt undir fallhamarinn

Á fundi Skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar í síðustu viku var lagt til við bæjarráð að fjárfestingaráætlun árið 2022 verði uppfærð með tilliti til þess að húsin við Suðurgötu 108, Suðurgötu 124, Dalbraut 8 og Dalbraut 10 verði rifin niður. Húsin sem um ræðir við Dalbraut 8 og 10 hýstu áður starfsemi Orkuveitunnar og Fjöliðjunnar. Á…Lesa meira

true

Rafræn menningarstefna fyrir Vesturland

Menningarstefna Vesturlands 2021-2024 hefur nú formlega verið gefin út. Að þessu sinni er hún rafræn. Þá hafa verið frumsýnd stutt kynningarmyndbönd þar sem stefna hvers kafla er kynnt og sýnir hversu fjölbreytt og öflugt menningarstarf er á Vesturlandi. „Menningarstefnan er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Vesturlands. Hún var samþykkt í lok síðasta árs og er í raun endurskoðuð…Lesa meira

true

Matthías Leó þriðji á Íslandsmótinu í keilu

Síðasta sunnudag lauk keppni á Íslandsmóti einstaklinga 2022 með forgjöf í keilu. Dagurinn hófst á því að undanúrslit sex efstu úr hvorum flokki voru leikin en spilað var í svokölluðu Round Robin, þ.e. allir við alla. Eftir það fóru þrjú efstu úr hvorum flokki í úrslitaviðureignirnar, spilaður var einn leikur og féll sá sem var…Lesa meira

true

Vegvísir fyrir ungt fólk í viðkvæmri stöðu

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur veitt Vinnumálastofnun 25 milljóna króna styrk vegna tilraunaverkefnisins „Vegvísir“ sem ætlað er að bæta þjónustu við ungt fólk í viðkvæmri stöðu, þ.e. einstaklinga á aldrinum 16-29 ára sem eru ekki í námi, þjálfun eða starfi (NEET). Markmiðið með verkefninu er að sporna við ótímabæru brotthvarfi ungs fólks af…Lesa meira

true

Mottumars er genginn í garð

Mottumars, árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá körlum hófst í dag, 1. mars. Í Mottumars er tekið höndum saman í vitundarvakningu um krabbamein hjá körlum og öflum fjár fyrir mikilvægri starfsemi Krabbameinsfélagsins. Í ár eru karlmenn minntir sérstaklega á að kynna sér hvaða einkenni geta bent til krabbameins og þeir hvattir…Lesa meira

true

Styrkja nú hjálpartækjakaup

Sjúkratryggingar Íslands greiða nú styrki vegna tiltekinna hjálpartækja til íbúa hjúkrunarheimila sem áður hefur verið á hendi hjúkrunarheimilanna sjálfra að útvega og greiða fyrir. Þetta á t.d. við um tiltekin hjálpartæki vegna öndunarmeðferðar og blóðrásarmeðferðar, stoðtæki, stómahjálpartæki, göngugrindur, hjólastóla og fylgihluti með þeim og tölvur til sérhæfðra tjáskipta. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerðir þessa efnis með…Lesa meira