{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "<a href=\"https://ssv.is/wp-content/uploads/2022/02/Menningarstefna-Vesturlands-2021-2024.pdf\">Menningarstefna Vesturlands 2021-2024</a> hefur nú formlega verið gefin út. Að þessu sinni er hún rafræn. Þá hafa verið frumsýnd stutt kynningarmyndbönd þar sem stefna hvers kafla er kynnt og sýnir hversu fjölbreytt og öflugt menningarstarf er á Vesturlandi.\r\n\r\n„Menningarstefnan er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Vesturlands. Hún var samþykkt í lok síðasta árs og er í raun endurskoðuð menningarstefna frá árinu 2016. Skipað var sérstakt fagráð skipuð aðilum frá öllum nema einu sveitarfélaganna á Vesturlandi, auk þess sem fjórir fagaðilar, starfandi í menningartengdum greinum í landshlutanum áttu sæti í ráðinu. Fagráðið tók sem áður segir ákvörðun um að endurskoða eldri menningarstefnu en með nýjum áherslum. Lögð væri áhersla á hvernig stefnan myndi þjóna minnihlutahópum á Vesturlandi, t.d. innflytjendum og að áhersla væri lögð á menningartengdar atvinnugreinar í stefnunni. Þá var stefnan mótuð út frá Vesturlandi sem einu menningarsvæði,“ segir í tilkynningu frá Sigursteini Sigurðssyni menningarfulltrúi SSV.",
"innerBlocks": []
}
Rafræn menningarstefna fyrir Vesturland - Skessuhorn