{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sjúkratryggingar Íslands greiða nú styrki vegna tiltekinna hjálpartækja til íbúa hjúkrunarheimila sem áður hefur verið á hendi hjúkrunarheimilanna sjálfra að útvega og greiða fyrir. Þetta á t.d. við um tiltekin hjálpartæki vegna öndunarmeðferðar og blóðrásarmeðferðar, stoðtæki, stómahjálpartæki, göngugrindur, hjólastóla og fylgihluti með þeim og tölvur til sérhæfðra tjáskipta. Heilbrigðisráðherra hefur staðfest reglugerðir þessa efnis með gildistöku frá og með 1. mars sl. Markmið breytinganna er að bæta og auðvelda aðgengi íbúanna að hjálpartækjum. Að sama skapi léttir þetta kostnaði af rekstraraðilum hjúkrunarheimila sem nemur allt að 60 milljónum króna á ári.\r\n\r\nBreytingin felur m.a. í sér að einstaklingur í heimahúsi sem nýtir sér tiltekin hjálpartæki líkt og hér um ræðir heldur þeim þegar hann flytur inn á heimilið, í stað þess að hjúkrunarheimilið útvegi honum önnur hjálpartæki í þeirra stað.",
"innerBlocks": []
}