Fréttir

true

Víða rafmagnstruflanir

Í gærkvöldi og fram á daginn í dag hefur víða verið rafmagnslaust á Vesturlandi, sökum djúprar lægðar sem gekk yfir landið með tilheyrandi hvassviðri og úrkomu. Um tíma í gærkvöldi var straumlaust í Borgarfirði og á Snæfellsnesi og á sama tíma á norðanverðri Hvalfjarðarströnd. Rafmagnsbilun varð einnig á Landsnetinu og því straumlaust frá Glerárskógi í…Lesa meira

true

Óverulegt tjón og lítið um útköll af völdum óveðursins

Svo virðist sem lægðin sem gekk yfir landið í gær og nótt hafi haft óveruleg áhrif hér á Vesturlandi, jafnvel þótt vindhraði hafi mælst mikill, einkum í gærkvöldi. Fá mál eru færð til bókar í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi. Helst að ökumenn hafi lent í vandræðum. Hringt var í Neyðarlínuna um kvöldmatarleytið og tilkynnt um…Lesa meira

true

Snjóflóð lokar Klofningsvegi

Stórt snjóflóð féll í morgun við Heinaberg á Skarðsströnd og lokar Klofningsvegi. Flóðið er um 150 metra breitt á vegi og um 2,2 metrar þar sem það er dýpst.Lesa meira

true

Skólahaldi aflýst í Snæfellsbæ

Veðurspáin fyrir daginn er slæm fyrir vestanvert Snæfellsnes. „Við sjáum það fyrir okkur að nemendur og starfsfólk komist til skóla en erfiðara eða illmögulegt verður að komast heim fyrr en seint í dag. Jafnframt er mikið um veikindi meðal nemenda og starfsfólks. Af þeim sökum aflýsum við skóla í dag,“ segir Hilmar Már Arason skólastjóri…Lesa meira

true

Vill að vegur yfir Grunnafjörð verði valkostur við ákvörðun um framtíðar vegstæði

Í aðsendri grein í Skessuhorni í síðustu viku, sem ber heitið Björgum sveitinni, skrifar Ólafur Óskarsson um hugmyndir um veglínu nýs Vesturlandsvegar um Hvalfjarðarsveit. Hann, ásamt fleiri eigendum lands á Beitistöðum, segist hafa skoðað hugmyndir og tillögur VSÓ fyrir Vegagerðina, sem unnar voru fyrir tilstuðlan sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar, um vegarlagningar um sveitarfélagið og tengjast aðalskipulagsgerð. Mótmælir…Lesa meira

true

Stefna að blandaðri byggð í Brákarey

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur ákveðið að auglýsa eftir áhugasömum samstarfsaðilum um skipulagsmál og uppbyggingu í Brákarey, svo sem með stofnun þróunarfélags, þar sem unnið verður úr þeim hugmyndum og íbúafundum sem haldnir hafa verið undanfarin ár. „Í slíkri uppbyggingu telur byggðarráð mikilvægt að haldið sé í sérkenni eyjunnar, þar sem meðal annars sé litið til þess…Lesa meira

true

Var dregin út í eldvarnagetraun

Verðlaun voru veitt í síðustu viku í eldvarnagetraun Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutingsmanna. Sigurður Þór Elísson eldvarnaeftirlitsmaður hjá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðar fór þá í Grundaskóla og afhenti Laufeyju Svanbergsdóttur nemanda í 3. bekk verðlaun. Nafn hennar hafði verið dregið út og fékk Laufey að launum viðurkenningarskjal og gjafakort í Spilavinum.Lesa meira

true

Björgunarsveitir kallaðar út

Um 200 björgunarsveitarmenn sinna nú verkefnum víðsvegar á landinu vegna óveðurslægðar sem nú er komin inn á landið. Verkefnin hafa verið ýmiss konar, fokverkefni og aðstoð við að losa fasta bíla. Verkefnin eru rúmlega 70 það sem af er kvöldi, samkvæmt tilkynningu frá Landsbjörgu. Skessuhorni er kunnugt um að björgunarsveitir á Vesturlandi hafa verið kallaðar…Lesa meira

true

Rafmagnslaust við norðanverðan Hvalfjörð

Rafmagnsbilun er nú í gangi frá Hlöðum inn í Hvalfjarðarbotn, en samkvæmt tilkynningu frá Rarik er verið að leita að bilun. “Ef þú hefur einhverjar upplýsingar sem gætu hjálpað við bilanaleit hafðu þá vinsamlega samband við Svæðisvakt RARIK Vesturlandi í síma 528 9390.” Kort af svæði sem talið er vera um að ræða má sjá…Lesa meira

true

Baader eignast allt hlutafé í Skaginn 3X

Þýska fyrirtækið Baader hefur eignast allt hlutafé í Skaginn 3X, en samningur þess efnis var undirritaður í dag. Baader keypti eins og kunnugt er 60% hlutafjár í fyrirtækinu í lok árs 2020 eftir að fyrrum eigendur leituðu eftir fjárfestum til að styðja við félagið og rekstrarfélög þess. Baader hefur nú keypt eftirstandandi 40% hlut af…Lesa meira