Stefna að blandaðri byggð í Brákarey

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Byggðarráð Borgarbyggðar hefur ákveðið að auglýsa eftir áhugasömum samstarfsaðilum um skipulagsmál og uppbyggingu í Brákarey, svo sem með stofnun þróunarfélags, þar sem unnið verður úr þeim hugmyndum og íbúafundum sem haldnir hafa verið undanfarin ár. „Í slíkri uppbyggingu telur byggðarráð mikilvægt að haldið sé í sérkenni eyjunnar, þar sem meðal annars sé litið til þess að varðveita „Burstirnar þrjár“ og hugsanlega fleiri byggingar sé það raunhæft fyrir uppbyggingu svæðisins. Á svæðinu skuli vera blönduð byggð, með íbúabyggð, menningartengdri starfsemi, léttum iðnaði, útivist og frístundastarfsemi, í sátt við núverandi starfsemi,“ segir í bókun af fundi byggðarráðs síðastliðinn fimmtudag.\r\n\r\n„Byggðarráð hefur væntingar um að hægt sé að líta til sambærilegra verkefna sem hafa verið unnin hér á landi og erlendis á aflögðum iðnaðar- og athafnasvæðum þar sem uppbyggingin miðast við að halda í sögu og menningu svæðisins og tengja við framtíðarsýn og starfsemi sem tengist þörfum samtímans.“",
  "innerBlocks": []
}
Stefna að blandaðri byggð í Brákarey - Skessuhorn