{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Veðurspáin fyrir daginn er slæm fyrir vestanvert Snæfellsnes. „Við sjáum það fyrir okkur að nemendur og starfsfólk komist til skóla en erfiðara eða illmögulegt verður að komast heim fyrr en seint í dag. Jafnframt er mikið um veikindi meðal nemenda og starfsfólks. Af þeim sökum aflýsum við skóla í dag,“ segir Hilmar Már Arason skólastjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar í tilkynningu til foreldra.\r\n\r\nSvo heppilega vill til að vetrarfrí er nú í nokkrum skólum í landshlutanum, þ.á.m. í Hvalfjarðarsveit og Borgarbyggð.",
"innerBlocks": []
}