Götur eru nú að mestu orðnar auðar á Akranesi, en þar hefur úrkoman síðasta sólarhring öll verið í formi rigningar og því miklar leysingar.

Óverulegt tjón og lítið um útköll af völdum óveðursins

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Svo virðist sem lægðin sem gekk yfir landið í gær og nótt hafi haft óveruleg áhrif hér á Vesturlandi, jafnvel þótt vindhraði hafi mælst mikill, einkum í gærkvöldi. Fá mál eru færð til bókar í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi. Helst að ökumenn hafi lent í vandræðum.\r\n\r\nHringt var í Neyðarlínuna um kvöldmatarleytið og tilkynnt um bílveltu á veginum skammt frá Hraunfossum í Borgarfirði. Þar var um að ræða erlenda ferðamenn, hjón með fjögur börn sem höfðu komið sér í vandræði, en þegar björgunarsveit kom á staðinn kom í ljós að ekki var um bílveltu að ræða heldur einungis hræðslu þeirra við að bíllinn myndi velta út af vegöxlinni. Mjög hvasst var á vettvangi og var fólkið ferjað yfir í björgunarsveitarbíl og komið í skjól.\r\n\r\nSeinni partinn í gær var hringt í 112 þar sem vegfarandi hafði tilkynnt um erlenda ferðamenn sem voru fastir á ferð sinni í Bröttubrekku, en gat ekki aðstoðað þá. Björgunarsveit var kölluð út og sótti fólkið en alls voru þrír í bílnum.\r\n\r\nÍ gærkvöldi rann bifreið til og fauk á aðra kyrrstæða bifreið í mikilli hálku á bílastæði við Jaðarsbakka á Akranesi. Ökumaður slapp ómeiddur og lítið tjón var á bifreiðunum.",
  "innerBlocks": []
}
Óverulegt tjón og lítið um útköll af völdum óveðursins - Skessuhorn