
Athafnasvæði Skagans 3X við Krókalón á Akranesi. Ljósm. mm.
Baader eignast allt hlutafé í Skaginn 3X
{ "name": "core/freeform", "attributes": [], "saveContent": "Þýska fyrirtækið Baader hefur eignast allt hlutafé í Skaginn 3X, en samningur þess efnis var undirritaður í dag. Baader keypti eins og kunnugt er 60% hlutafjár í fyrirtækinu í lok árs 2020 eftir að fyrrum eigendur leituðu eftir fjárfestum til að styðja við félagið og rekstrarfélög þess. Baader hefur nú keypt eftirstandandi 40% hlut af IÁ-hönnun, fyrirtækis í eigu Ingólfs Árnasonar frumkvöðuls og fjölskyldu hans. „Þetta eru góðar fréttir fyrir fyrirtækið og starfsmenn þess og fyrirtækið verður nú betur í stakk búið að takast á við skuldbindingar sínar og þær kröfur sem gerðar eru til fyrirtækisins,“ segir Jeff Davis, stjórnarformaður Skaginn 3X, í tilkynningu.\r\n\r\nSkaginn 3X verður nú að öllu leyti hluti Baader samstæðunnar og hefst samþætting starfsemi félaganna nú þegar og er reiknað með að henni ljúki á næstu mánuðum. Jeff Davis, sem gegnt hefur starfi stjórnarformanns, verður áfram í því hlutverki og Guðjón Ólafsson mun áfram gegna starfi sem tímabundinn forstjóri.", "innerBlocks": [] }