
„Við förum fram á að Grunnafjarðarleiðinni verði bætt inn sem valkosti við þær fjórar leiðir sem nefndar hafa verið sem valkostir í tillögum Vegagerðarinnar.“ Hér má sjá frumhönnun veglínu frá Akranesi, yfir Grunnafjörð og inn á þjóðveginn í Melasveit. Teikning: Hnit.
Vill að vegur yfir Grunnafjörð verði valkostur við ákvörðun um framtíðar vegstæði
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í aðsendri grein í Skessuhorni í síðustu viku, sem ber heitið Björgum sveitinni, skrifar Ólafur Óskarsson um hugmyndir um veglínu nýs Vesturlandsvegar um Hvalfjarðarsveit. Hann, ásamt fleiri eigendum lands á Beitistöðum, segist hafa skoðað hugmyndir og tillögur VSÓ fyrir Vegagerðina, sem unnar voru fyrir tilstuðlan sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar, um vegarlagningar um sveitarfélagið og tengjast aðalskipulagsgerð. Mótmælir bréfritari tillögunum harðlega. „Við teljum þær engan veginn fullnægja þeim væntingum eða kröfum sem gera má til slíkra framkvæmda í dag.“ Í tillögum VSÓ er boðið upp á fjórar leiðir, sem að mati greinarhöfundar eru óásættanlegar. „Vafalaust hafa þær allar einhverja kosti, hver með sínu sniði, en allar eru þær stórgallaðar. Tillögurnar kalla á mikið af hliðarvegum með ýmisskonar tengingum og undirgöngum, smíði nokkurra brúa, takmarka íbúum aðgang að eigin landi, nálægð vega við íbúðabyggð og frístundabyggð, gerir fólki jafnvel dvöl í eigin húsum illmögulega.“\r\n\r\nÞá leggur Ólafur til í grein sinni að Grunnafjarðarleiðin verði sett inn sem valkostur, það er að leggja veginn með brú fyrir mynni Grunnafjarðar. „Það er leið sem búið er að skoða mjög vel af sérfræðingum Vegagerðarinnar m.a. í skýrslu sem var unninn af VSÓ 2009. Niðurstaða þeirrar skýrslu var sú að þetta væri álitlegur kostur og vel framkvæmanlegur að uppfylltum þeim kröfum sem til þess væru gerðar.“ Í lokin skrifar Ólafur: „Við förum fram á að Grunnafjarðarleiðinni verði bætt inn sem valkosti við þær fjórar leiðir sem nefndar hafa verið sem valkostir í tillögum Vegagerðarinnar. Einnig óskum við eftir að haldinn verði kynningarfundur um málið.“\r\n\r\n<a href=\"https://skessuhorn.is/adsendar-greinar/bjorgum-sveitinni/\">Sjá grein Ólafs hér.</a>\r\n\r\n<a href=\"https://www.vso.is/vesturlandsvegur-vefsja/\">Hér má sjá kynningu VSÓ ráðgjafar um nýja veglínu um Hvalfjarðarsveit.</a>\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}