Fréttir

true

Viðamestu leitaraðgerð síðari ára fram haldið í dag

Afar fjölmennri og umfangsmikilli leit að Cessna flugvél með fjórum innanborðs, sem fór frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 10:30 í gærmorgun, verður fram haldið í dag. Um borð í vélinni er íslenskur flugmaður og þrír erlendir farþegar. Leitin að vélinni skilaði ekki árangri í gær, en leitað var fram á nóttina. Um sjö hundruð manns tóku þátt…Lesa meira

true

Borgarbraut 14 fær nýtt hlutverk

Borgarbyggð hefur nú gengið frá kaupsamningi um húseignina Borgarbraut 14 í Borgarnesi. Húsið, sem er 1.053 fermetrar að stærð frá árinu 1960, var upphaflega byggt fyrir starfsemi Sparisjóðs Mýrasýslu en hefur síðustu árin verið Ráðhús sveitarfélagsins. Kaupandi þess er Steðji fjárfestingar ehf. og er kaupverðið 60 milljónir króna. Áform Steðja fjárfestinga ehf eru að innrétta…Lesa meira

true

Vinnumarkaðurinn samanstendur af 200.500 manns

Helstu niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands fyrir fjórða ársfjórðung nýliðins árs sýna að staða vinnuafls á íslenskum vinnumarkaði hefur batnað nokkuð frá árinu áður. Það má til dæmis sjá á því að hlutfall starfandi hefur hækkað og atvinnuleysi minnkað en um leið sést enn töluverð fjarvera frá vinnu. Hlutfall mannfjölda 16 til 74 ára á vinnumarkaði,…Lesa meira

true

Verulegir annmarkar voru á vinnulagi og eftirliti við stækkun skóla

Saminn hefur verið verkferill til að slíkt endurtaki sig ekki í framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins Byggðarráð Borgarbyggðar tók í morgun til umfjöllunar skýrslu vegna úttektar á framkvæmdum við stækkun og endurbætur á Grunnskólanum í Borgarnesi, sem fram fór á árunum 2014-2020. Í skýrslunni kemur fram að verulegir ágallar hafi verið á vinnulagi og eftirliti með…Lesa meira

true

Flugvélar saknað með fjóra innanborðs

Hafin er umfangmikil leit að lítilli flugvél sem fór frá Reykjavíkurflugvelli á ellefta tímanum í morgun. Síðasta þekkta staðsetning vélarinnar var yfir Heiðmörk. Þrír farþegar auk flugmanns eru í vélinni. Björgunarsveitir á öllu sunnan- og suðvestanverðu landinu eru að hefja leit og þá er þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi. Meðal annars er verið að leita á…Lesa meira

true

Segir bann við handfæraveiðum mannréttindabrot

Eyjólfur Ármannsson, þingmaður Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi, færði í gær í tal úr ræðustól Alþingis frjálsar handfæraveiðar. „Bann við frjálsum handfæraveiðum er mannréttindabrot, það sýnir álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna sem kom fram árið 2007. Í dag byggist núverandi strandveiðikerfi á því og það er bara allsendis ófullnægjandi. Í dag er ekki skilið á milli stórtækra…Lesa meira

true

Arion banki ákveður að loka útibúi sínu í Búðardal

Viðskiptavinum Arion banka í Búðardal hefur borist tölvupóstur frá bankanum þess efnis að tilkynnt er um lokun bankaútibúsins í Búðardal. „Nú er komið að útibúinu okkar í Búðardal en það mun sameinast útibúinu okkar í Borgarnesi. Afgreiðslan í Búðardal mun í framhaldinu loka. Breytingin mun taka gildi 31. mars nk. Starfsfólk útibúsins verður áfram hluti…Lesa meira

true

Aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA

Aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA verður haldinn á Jaðarsbökkum fimmtudaginn 17. febrúar næstkomandi klukkan 20. Samkvæmt tilkynningu verður dagskrá fundarins samkvæmt 8. grein laga félagsins sem finna má á heimsíðunni kfia.is. Tillögur um lagabreytingar skulu berast skrifstofu félagsins eigi síðar en 10. febrúar nk.Lesa meira

true

ARR genið fannst ekki í þessari umferð

Eftir að hin svokallaða ARR arfgerð, sem er verndandi gegn riðuveiki, fannst í kindum frá Þernunesi við Reyðarfjörð vaknaði von um að hana væri einnig að finna á Kambi í Reykhólasveit því féð sem greindist á Reyðarfirði átti meðal annars ættir sínar að rekja til Kambs. Kambur er sölubú fyrir fé, selur gripi á fæti…Lesa meira

true

Dósamóttakan opnuð að nýju

Endurvinnslumóttaka Fjöliðjunnar að Smiðjuvöllum 9 á Akranesi hefur verið opnuð að nýju eftir tímabundna lokun vegna Covid-19. Opnunartími er alla virka daga frá klukkan 9 til 11:45 og frá klukkan 13 til 15:30.Lesa meira