Fréttir

true

Innflekaskjálftar ekki ólíkir Síðufjallsskjálftanum 1974

Að sögn Einars Bessa Gestssonar, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands, eru jarðskjálftarnir í ofanverðum Borgarfirði svokallaðir innflekaskjálftar þar sem þeir eru utan flekaskila og flekamóta og ekki inni á eldvirku svæði. „Skjálftarnir verða líklega vegna einhverra spennubreytinga inni á flekanum. Flekamótin eru þarna austan við þetta svæði og hugsanlegt er að einhverjar hreyfingar séu á flekamótunum…Lesa meira

true

Snarpasti jarðskjálftinn til þessa í ofanverðum Borgarfirði

Stærsti jarðskjálftinn í hrinu, sem staðið hefur yfir frá áramótum, varð á Þóreyjartungum í ofanverðum Borgarfirði laust eftir miðnætti í nótt, nánar til tekið kl. 00:05. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands var skjálftinn 3,7 stig og upptök hans voru á um fjögurra kílómetra dýpi. Þá hefur mikill fjöldi minni skjálfta fylgt í kjölfarið. Íbúar í…Lesa meira

true

ÍA tapaði fyrir Fjölni

Á sunnudagskvöldið áttust við lið Skagamanna og Fjölnis í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram á Akranesi. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta en ÍA seig fram úr seinni hlutann og staðan 19:15 ÍA í vil. Í byrjun annars leikhluta náði ÍA tíu stiga forystu og hélt því nokkurn veginn…Lesa meira

true

Slökkvilið Reykhólahrepps fær nýjan slökkvibíl

Um síðustu helgi fékk Slökkvilið Reykhólahrepps afhentan nýjan slökkvibíl af gerðinni Ford F450 Super Cap árgerð 2005. Hann er einungis ekinn um 19 þúsund kílómetra og er 27 árum yngri en sá bíll sem var fyrir. Þetta kemur fram á vefsíðu sveitarfélagsins. Bíllinn er útbúinn með svonefndu One-Seven froðukerfi en með því er froðuefninu blandað…Lesa meira

true

Umhverfisstofnun auglýsir tillögu að starfsleyfi fiskeldis

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að starfsleyfi fyrir Veiðifélag Ytri-Rangár. Um er að ræða landeldi á laxfiskum að Húsafelli í Hálsasveit þar sem hámarks lífmassi á hverjum tíma má ekki fara yfir 40 tonn. Veiðifélag Ytri-Rangár hefur verið með leyfi til framleiðslu á 300.000 seiðum allt að 40g á sama stað. Þetta kemur fram á vefsíðu…Lesa meira

true

Hressileg fjölgun í einangrun á suðurhluta Vesturlands

Lögreglan á Vesturlandi var rétt í þessu að birta samantekt um fjölda smitaðra af Covid-19 og í sóttkví í landshlutanum. Líkt og búist hafði verið við í kjölfar tilslakana á sóttvörnum hefur fjölgað bæði í einangrun og sóttkví; eru alls 573 á Vesturlandi; 241 í sóttkví og 332 í einangrun. Langmest fjölgun er í heilsugæsluumdæmunum…Lesa meira

true

Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs gengst fyrir Þorragönguviku

Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs ætlar að gangast fyrir stuttum gönguferðum í héraði, daglega, vikuna 7. til 12. febrúar (mánudag til laugardags). „Nú er lag að hrista af sér slenið og ná úr sér stirðleikanum eftir sóttkvíar og sófakúr,“ segir í tilkynningu frá félaginu. Dagskrá Þorragönguviku verður þessi: febrúar, mánudagur, kl. 17.00: Borgarneshringur. – Mæting við Íþróttamistöðina í…Lesa meira

true

Heimilt verður að fella 1.021 hreindýr

Alls verður heimilt að veiða 1.021 hreindýr á veiðitímanum í ár; 546 kýr og 475 tarfa. Þetta er 199 hreindýrum færra en á liðnu ári sem stafar fyrst og fremst af óvissu um talningar hreindýra vegna veðurskilyrða og tilfærslu dýra milli veiðisvæða á talningartímanum. Umhverfisráðherra hefur ákveðið veiðiheimildir til hreindýraveiða fyrir árið og skiptingu þeirra…Lesa meira

true

Fékk net í hliðarskrúfuna

Netabáturinn Brynjólfur VE kom til hafnar í Ólafsvík á tólfta tímanum í dag til að fá kafara til þess að skera net úr hliðarskrúfu bátsins. Skipsverjar voru rétt að byrja að draga netin í morgun í sínum fyrsta túr á Breiðafirðinum og voru aðeins búnir að draga fjögur net þegar þeir fengu í hliðarskrúfuna. Þeir…Lesa meira

true

Suðaustan snjókoma og gul viðvörun

Í dag er spáð allhvassri suðaustanátt og snjókomu um vestanvert landið. Gul viðvörun er við Faxaflóa vegna þessa fram yfir miðjan dag. Skyggni verður lélegt og versnandi akstursskilyrði, hvassast sunnan til.Lesa meira