Nýi slökkvibíllinn í Reykhólahreppi. Ljósm. af vefsíðu Reykhólahrepps

Slökkvilið Reykhólahrepps fær nýjan slökkvibíl

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Um síðustu helgi fékk Slökkvilið Reykhólahrepps afhentan nýjan slökkvibíl af gerðinni Ford F450 Super Cap árgerð 2005. Hann er einungis ekinn um 19 þúsund kílómetra og er 27 árum yngri en sá bíll sem var fyrir. Þetta kemur fram á vefsíðu sveitarfélagsins. Bíllinn er útbúinn með svonefndu One-Seven froðukerfi en með því er froðuefninu blandað við vatn með þrýstilofti. Við það sjöfaldast rúmmál vatnsins en jafnframt er notkun á froðuefninu um það bil níu sinnum minni en með eldri búnaði.\r\n\r\nNánast eins bíll er í Búðardal, með slökkvibúnaði frá sama aðila, og hefur sá reynst vel. Fordinn leysir af hólmi eldri bíl af gerðinni Magirus Deutz af árgerð 1978. Fordinn er til muna hraðskreiðari og þar af leiðandi með betri viðbragðstíma og meiri slökkvimátt að auki.",
  "innerBlocks": []
}
Slökkvilið Reykhólahrepps fær nýjan slökkvibíl - Skessuhorn