
Togarinn Brynjólfur kemur til hafnar í Ólafsvík fyrr í dag. Ljósm. af.
Fékk net í hliðarskrúfuna
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Netabáturinn Brynjólfur VE kom til hafnar í Ólafsvík á tólfta tímanum í dag til að fá kafara til þess að skera net úr hliðarskrúfu bátsins. Skipsverjar voru rétt að byrja að draga netin í morgun í sínum fyrsta túr á Breiðafirðinum og voru aðeins búnir að draga fjögur net þegar þeir fengu í hliðarskrúfuna. Þeir gátu siglt til Ólafsvíkur þar sem Víðir Haraldsson kafari er að skera úr skrúfu bátsins.\r\n\r\nÞað er fremur óvanalegt að togari sé á netaveiðum, en áhöfnin á Brynjólfi VE hefur undanfarin ár verið á netum á Breiðafirði með góðum árangri. Hafa þeir landað afla sínum í Grundarfirði en báturinn er í eigu Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum og er aflinn slægður um borð og síðan er fiskurinn sendur með bílum í Herjólf sem síðan fer með fiskinn til Vestmannaeyja þar sem aflinn er fullunninn.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_50733\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-50733 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/01/Fekk-net-i-hlidarskrufuna_2-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"400\" /> Víðir Haraldsson kafari er hér að undirbúa sig til þess að skera úr hliðarskrúfu Brynjólfs.[/caption]",
"innerBlocks": []
}