Borg á Mýrum 29. janúar sl. Ljósm. FFB.
Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs gengst fyrir Þorragönguviku
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
febrúar, mánudagur, kl. 17.00: Borgarneshringur. - Mæting við Íþróttamistöðina í Borgarnesi.
\r\n \t
febrúar, þriðjudagur, kl. 17.00: Ganga í Reykholtsskógi. - Mæting á kirkjuplanið í Reykholti.
\r\n \t
febrúar, miðvikudagur, kl. 17.00: Hvanneyrarhringur. - Mæting við Ásgarð (skólahús LBHÍ).
\r\n \t
febrúar, fimmtudagur, kl. 20.00: Vasaljósaganga í Einkunnum. Mæting á bílastæði í Einkunnum.
\r\n \t
febrúar, föstudagur, kl. 17.00: Varmalandshringur - Mæting við grunnskólann á Varmalandi.
\r\n \t
febrúar, laugardagur, kl. 10.00: Þorraganga í Norðurárdal. - Mæting á bílastæðið við gamla skólahúsið á Bifröst.
\r\n
\r\n„Í upphafi hverrar göngu verður boðið upp á smá fróðleik um sitthvað er tengist göngu og gönguferðum. Athugið að göngur virku dagana hefjast kl. 17.00 nema á fimmtudag þar sem beðið verður eftir myrkrinu og gangan hefst kl. 20.00. - Lengd hverrar göngu er á bilinu 45 og 60 mínútur. Gangan á laugardag hefst kl. 10.00 um morguninn og tekur ca. 3 tíma.\r\n\r\nFólki er ráðlagt að búa sig eftir veðri og aðstæðum. Í Vasaljósagöngunni er líka æskilegt að vera með ljós af einhverju tagi. Göngunefnd FFB áskilur sér rétt til að fella niður göngu ef útlit er fyrir aftakaveður! Að því sögðu þá reiknum við ekki endilega með sól og hita alla daga á miðjum þorra. Smá hryssingur getur jú verið hressandi! Allir ávallt velkomnir, jafnt félagsmenn sem aðrir.“",
"innerBlocks": []
Ferðafélag Borgarfjarðarhéraðs gengst fyrir Þorragönguviku - Skessuhorn