Heimilt verður að fella 1.021 hreindýr

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Alls verður heimilt að veiða 1.021 hreindýr á veiðitímanum í ár; 546 kýr og 475 tarfa. Þetta er 199 hreindýrum færra en á liðnu ári sem stafar fyrst og fremst af óvissu um talningar hreindýra vegna veðurskilyrða og tilfærslu dýra milli veiðisvæða á talningartímanum. Umhverfisráðherra hefur ákveðið veiðiheimildir til hreindýraveiða fyrir árið og skiptingu þeirra milli sveitarfélaga, að fengnum tillögum frá Umhverfisstofnun.\r\n\r\nVeiðitími tarfa er frá 1. ágúst til 15. september, en þó getur Umhverfisstofnun heimilað veiðar á þeim frá og með 15. júlí. Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til 20. september. „Fyrstu tvær vikur veiðitímabilsins er veiðimönnum gert að forðast í lengstu lög að fella mylkar kýr svo draga megi eftir megni úr áhrifum veiðanna á kálfa. Þess í stað eru veiðimenn eindregið hvattir til að veiða eingöngu geldar kýr. Er í þessu sambandi bent á hlutverk og skyldur leiðsögumanna við að aðstoða og leiðbeina veiðimönnum við val á bráð. Þá eru veturgamlir tarfar alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tarfa sem eru tveggja vetra og eldri. Óheimilt er að veiða kálfa,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.\r\n\r\nUmhverfisstofnun auglýsir og sér um sölu allra veiðiheimilda.",
  "innerBlocks": []
}
Heimilt verður að fella 1.021 hreindýr - Skessuhorn