Fréttir

true

Leik Snæfells og KR frestað um eina viku

Leik Snæfells og KR í 1. deild kvenna í körfuknattleik sem átti að fara fram í kvöld í Stykkishólmi hefur verið frestað um viku vegna kóvid smita og sóttkvíar í leikmannahópi Snæfells. Leikurinn átti upphaflega að fara fram í gær en var frestað á meðan beðið var niðurstöðu úr PCR prófi. Næsti leikur Snæfells er…Lesa meira

true

Lokun milli Skagabrautar og Háholts

Í gær hófust framkvæmdir á stígnum milli Skagabrautar og Háholts á Akranesi. Þetta kemur fram á vefsíðu Akraneskaupstaðar. Stéttafélagið mun þurfa að setja upp þrengingu á Háholtinu vegna þessarar vinnu og eru íbúar beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin hefur í för með sér.Lesa meira

true

Lokað í laugum á Akranesi og Borgarnesi í dag

Vegna bilunar í aðveitulögn má búast við minni þrýstingi og jafnvel heitavatnsleysi á Akranesi í kvöld og fram á nótt. Af þeim sökum verða Jaðarsbakkalaug ásamt Guðlaugu lokaðar í dag og er beðist velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. Þá er útisundlaugin í Borgarnesi einnig lokuð í dag vegna bilunar hjá Veitum.Lesa meira

true

ÍA fær tvo leikmenn frá Val

Knattspyrnufélag ÍA gerði í gær samninga við tvo leikmenn úr röðum Vals í Reykjavík og eru samningarnir til tveggja ára. Annars vegar er það Svíinn Johannes Vall sem er 29 ára varnarmaður og hefur leikið í efstu deildum í Svíþjóð og hins vegar Daninn Christian Køhler sem er 25 ára miðjumaður og hefur hann leikið…Lesa meira

true

Hanna nýjan Vesturlandsveg frá Hvalfjarðargöngum að Borgarfjarðarbrú

VSÓ Ráðgjöf, fyrir hönd Vegagerðarinnar, vinnur nú að frumdrögum hönnunar vegna breikkunar Vesturlandsvegar frá Hvalfjarðargöngum að Borgarfjarðarbrú. Framkvæmdin er á samgönguáætlun og gert ráð fyrir að henni verði skipt í áfanga og vonir bundnar við að heildarframkvæmdin klárist á tíu árum. Vegurinn á milli Hvalfjarðarganga og Borgarness er einn fjölfarnasti vegur landsins utan höfuðborgarsvæðisins og…Lesa meira

true

Veitur í vandræðum með vatnið

Veitur tilkynna að í dag megi búast við lágum heitavatnsþrýstingi og jafnvel vatnsleysi á Akranesi. Notendur eru beðnir að fara sparlega með heitt vatn. Bilun var einnig í gær og voru íbúar í Borgarnesi og á Akranesi þá beðnir að fara sparlega með vatn. „Fólki er bent á að hafa skrúfað fyrir alla heitavatnskrana til…Lesa meira

true

„Hollt að upplifa sig í minnihlutahópi“

Í janúarmánuði ár hvert um heim allan fer fram vitundarvakningin og verkefnið Veganuary, eða Veganúar eins og það kallast hérlendis, og er á vegum Samtaka grænkera á Íslandi síðan árið 2016. Eins og nafnið gefur til kynna er verið að skeyta saman tveimur orðum, janúar og vegan, svo úr verði Veganúar. Í heilan mánuð er…Lesa meira

true

Skildi ekkert í móður sinni að fara með sig á einhverja eldfjallaeyju

Hildur Sólveig Sigurðardóttir sjúkraþjálfari bjó fyrstu árin á Akranesi en frá ellefu ára aldri í Vestmannaeyjum. Hún hefur verið öflug í íþróttum og tekur virkan þátt í sveitarstjórnarmálum. Þá hefur Hildur Sólveig vakið athygli fyrir verkefni sitt meðal elstu bekkja grunnskóla en það ber heitið Leiðarvísir líkamans. Árið 2020 fékk hún m.a. styrk frá Lýðheilsusjóði…Lesa meira

true

Efna til hugmyndasamkeppni um Breiðina á Akranesi

Breið þróunarfélag hefur efnt til hugmyndasamkeppni fyrir hönd Brims hf. og Akraneskaupstaðar um skipulagningu á Breið á Akranesi. Um er að ræða opna hugmyndasamkeppni fyrir um 16 hektara svæði með ýmsa möguleika. „Þetta er eitt fallegasta svæðið á Akranesi þar sem hafa orðið breyttar forsendur á atvinnuháttum. Þar er ekki lengur fiskvinnsla eins og áður…Lesa meira

true

Hefja mælingaferð til að meta loðnustofninn

Í dag halda bæði skip Hafrannsóknastofnunar, Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson, til loðnumælinga. Markmiðið er að ná mælingu á stærð hrygningarstofnsins á næstu tveimur vikum. Fyrir liggur mæling á stærð stofnsins frá því í haust við Grænland sem leiddi til ráðgjafar upp á rúm 904 þúsund tonn. Gildandi aflaregla gerir ráð fyrir að sú ráðgjöf…Lesa meira