{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Leik Snæfells og KR í 1. deild kvenna í körfuknattleik sem átti að fara fram í kvöld í Stykkishólmi hefur verið frestað um viku vegna kóvid smita og sóttkvíar í leikmannahópi Snæfells. Leikurinn átti upphaflega að fara fram í gær en var frestað á meðan beðið var niðurstöðu úr PCR prófi. Næsti leikur Snæfells er áætlaður laugardaginn 22. janúar gegn Stjörnunni í Garðabæ og hefst klukkan 17.",
"innerBlocks": []
}
Leik Snæfells og KR frestað um eina viku - Skessuhorn