Fyrirhugað yfirferðarsvæði rannsóknaskipanna, Árna Friðrikssonar og Bjarna Sæmundssonar.

Hefja mælingaferð til að meta loðnustofninn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í dag halda bæði skip Hafrannsóknastofnunar, Árni Friðriksson og Bjarni Sæmundsson, til loðnumælinga. Markmiðið er að ná mælingu á stærð hrygningarstofnsins á næstu tveimur vikum. Fyrir liggur mæling á stærð stofnsins frá því í haust við Grænland sem leiddi til ráðgjafar upp á rúm 904 þúsund tonn. Gildandi aflaregla gerir ráð fyrir að sú ráðgjöf verði endurskoðuð að loknum mælingum nú í vetur. Lokaráðgjöf um aflamark fyrir yfirstandandi vertíð mun svo byggja á niðurstöðum þessara tveggja mælinga.\r\n\r\n„Á síðustu árum hefur loðnuskipaflotinn tekið þátt í þessum mælingum en ekki er gert ráð fyrir slíku í ár þar sem þau skip eru upptekin við veiðar. Útgerðir munu hins vegar veita aðstoð og upplýsingar um loðnudreifingu sem nýtast við mælingarnar. Fyrirhugað yfirferðarsvæði skipanna tveggja er sýnt á mynd með frétt, ásamt leiðarlínum miðað við tvöfalda umferð. Nokkrir þættir geta svo haft áhrif á endanlegt yfirferðarsvæði svo sem veður, dreifing loðnu og hafís. Hægt er að fylgjast með ferðum rannsóknaskipa á <a href=\"https://skip.hafro.is/\">skip.hafro.is</a>/“ segir í tilkynningu frá Hafró.",
  "innerBlocks": []
}
Hefja mælingaferð til að meta loðnustofninn - Skessuhorn