Horft yfir Breiðina.

Efna til hugmyndasamkeppni um Breiðina á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Breið þróunarfélag hefur efnt til hugmyndasamkeppni fyrir hönd Brims hf. og Akraneskaupstaðar um skipulagningu á Breið á Akranesi. Um er að ræða opna hugmyndasamkeppni fyrir um 16 hektara svæði með ýmsa möguleika. „Þetta er eitt fallegasta svæðið á Akranesi þar sem hafa orðið breyttar forsendur á atvinnuháttum. Þar er ekki lengur fiskvinnsla eins og áður og standa því þarna meira og minna vannýtt svæði í dag. Þetta er einstakt svæði og mikil náttúruperla og við viljum fá sem flestar hugmyndir um hvernig við getum nýtt svæðið og gert það stórbrotið á landsvísu,“ segir Valdís Fjölnisdóttir framkvæmdastjóri hjá Breið í samtali við Skessuhorn.\r\n\r\nÞrjár bestu tillögurnar fá peningaverðlaun en fyrsta sætið fær 15 milljónir, annað sæti fimm milljónir og það þriðja þrjár milljónir. „Ég hef ekki heyrt um hærri peningaverðlaun fyrir svona hugmyndasamkeppni á Íslandi. Það er því til mikils að vinna fyrir góða hugmynd,“ segir Valdís og hvetur um leið alla arkitekta og aðra fagaðila að taka þátt í samkeppninni. Aðspurð segir hún að þátttakendum séu ekki settar neinar skorður er varðar hugmyndirnar en að áhersla verði lögð á nýsköpun og sjálfbærni, með hringrásarhagkerfið að leiðarljósi. „Þetta er alveg opin hugmyndasamkeppni en auðvitað viljum við setja fókus á gríðarlega fallega strandlengju sem býður upp á marga valmöguleika, þessa hvítu strönd, fallegt fuglalíf og stórbrotið útsýni,“ segir Valdís.\r\n\r\nHægt er að senda inn hugmyndir til 29. apríl nk. Þá mun dómnefnd fara yfir allar hugmyndir og niðurstaða á að liggja fyrir í júní. En í dómnefndinni eru m.a. Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri Akraneskaupstaðar og Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, sem er formaður dómnefndar. „Næsta skref þar á eftir verður að semja við þá aðila sem komu með bestu hugmyndirnar en við áskiljum okkur auk þess rétt á að kaupa áhugaverðar tillögur þó þær séu kannski ekki í vinningstillögunni,“ segir Valdís. „Við erum gríðarlega spennt að sjá þetta svæði taka á sig mynd en þetta er mjög gott tækifæri fyrir arkitekta og aðra fagaðila. Ljóst er að ef vel tekst til mun uppbygging á Breiðinni styðja við og efla byggðina á Neðri-Skaganum á Akranesi og framtíðarverðmæti kaupstaðarins af uppbyggingu verða mikil. Þá mun fjölbreytt starfsemi á Breiðinni styrkja bæjarfélagið til lengri tíma sem við, hjá Breið þróunarfélagi, höfum mikinn metnað fyrir að skili ávinningi fyrir samfélagið,“ bætir hún við.",
  "innerBlocks": []
}
Efna til hugmyndasamkeppni um Breiðina á Akranesi - Skessuhorn