Skjámynd af vef VSÓ sem sýnir legu vegarins, hringtorg og tengingar.

Hanna nýjan Vesturlandsveg frá Hvalfjarðargöngum að Borgarfjarðarbrú

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "VSÓ Ráðgjöf, fyrir hönd Vegagerðarinnar, vinnur nú að frumdrögum hönnunar vegna breikkunar Vesturlandsvegar frá Hvalfjarðargöngum að Borgarfjarðarbrú. Framkvæmdin er á samgönguáætlun og gert ráð fyrir að henni verði skipt í áfanga og vonir bundnar við að heildarframkvæmdin klárist á tíu árum. Vegurinn á milli Hvalfjarðarganga og Borgarness er einn fjölfarnasti vegur landsins utan höfuðborgarsvæðisins og hefur umferð á honum farið vaxandi síðustu ár.\r\n\r\nÍ nýrri vefsjá á vef VSÓ ráðgjafar má skoða fyrirhugaða framkvæmd og senda inn ábendingar sem fylgja munu frumdrögum inn á næstu stig hönnunar. Við veghönnun er gert ráð fyrir að breikka veginn í 2+1 veg, þar sem vegurinn mun skiptast á að vera tvöfaldur og einfaldur í sitt hvora áttina. Akstursstefnur verða aðskildar með vegriði og tengingum fækkað og þær gerðar öruggari. Á núverandi vegi eru nokkrir slæmir kaflar með tilliti til sjónlengda og slysatíðni en á fimm ára tímabili urðu 47 slys á kaflanum, þar af þrjú alvarleg.\r\n\r\nÞegar komið er inn á vefsjána birtist lítill gluggi uppi í vinstra horni þar sem hægt er að velja ýmsa möguleika. Bornir hafa verið saman fjórir valkostir við uppbyggingu vegarins og eru þeir allir sýnilegir í vefsjánni. Sú tillaga sem sameinar helstu markmið framkvæmdarinnar er 1c. Lítið mál er að súmma inn og út á kortinu og skoða tillögurnar í smáatriðum. „VSÓ óskar eftir ábendingum frá vegfarendum, sérstaklega íbúum á svæðinu. Hægt er að senda ábendingu í gegnum vefsjána með því að smella á „senda ábendingu“ uppi í hægra horni. Tekið verður tillit til ábendinganna á næstu stigum framkvæmdarinnar,“ segir í tilkynningu VSÓ.\r\n\r\n<a href=\"https://www.vso.is/vesturlandsvegur-vefsja/\">Sjá nánar hér.</a>",
  "innerBlocks": []
}
Hanna nýjan Vesturlandsveg frá Hvalfjarðargöngum að Borgarfjarðarbrú - Skessuhorn