
Guðrún Vala Elísdóttir tileinkaði sér vegan lífsstíl.
„Hollt að upplifa sig í minnihlutahópi“
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í janúarmánuði ár hvert um heim allan fer fram vitundarvakningin og verkefnið Veganuary, eða Veganúar eins og það kallast hérlendis, og er á vegum Samtaka grænkera á Íslandi síðan árið 2016. Eins og nafnið gefur til kynna er verið að skeyta saman tveimur orðum, janúar og vegan, svo úr verði Veganúar. Í heilan mánuð er verið að kynna veganisma og fólk almennt hvatt til að nýta þennan tíma til að máta sig við vegan lífstílinn. En hvað er vegan eða veganismi gætu sumir spurt sig?\r\n\r\n„Í stuttu máli mætti svara því að allir þeir sem eru vegan leitast við að útiloka og forðast, eftir fremsta megni, hagnýtingu og ofbeldi gagnvart dýrum, hvort sem það á við fæðu, fatnað, skemmtun eða aðra neyslu, eins og það er útskýrt á heimasíðu Samtaka grænkera á Íslandi,“ segir Guðrún Vala Elísdóttir í Borgarnesi. Tvö ár eru liðin síðan Guðrún Vala kyngdi síðasta kjötbitanum og segir hún ástæðuna fyrir því að hafa gerst vegan hafi fyrst og fremst verið vegna heilsufarsástæðna. „Ég hafði dregið mjög mikið úr kjötáti, var löngu hætt að borða unna kjötvöru og svínakjöt, síðan kjúkling og svo koll af kolli. Ég borðaði samt alltaf fisk. En fyrir tveimur árum breytti ég alveg yfir og gerðist vegan,“ segir Guðrún Vala við blaðamann Skessuhorns.\r\n\r\n<em>Sjá nánar í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
"innerBlocks": []
}