Fréttir

true

Unnið að hreinsun og loftræstingu í Brekkubæjarskóla

Mikið tjón varð í Brekkubæjarskóla á Akranesi fimmtudagskvöldið í síðustu viku en eldur kviknaði í kjallara skólans, í smíðastofu á neðstu hæð í vesturenda hússins, næst sjúkrahúsinu. Húsnæðið hafði staðið ónotað síðustu mánuði og stóð til að að hefja viðgerðir á því sökum rakaskemmda. Ekkert skólahald var daginn eftir og í gær lauk skóla á…Lesa meira

true

Vel gekk að slökkva eldinn

Eldur sem kom upp í timburhúsi í byggingu í Borgarnesi í nótt var að líkindum búinn að krauma í nokkurn tíma áður en Slökkvilið Borgarbyggðar var kallað út um klukkan fjögur í nótt. Þetta staðfestir Heiðar Örn Jónsson varaslökkviliðsstjóri í samtali við Skessuhorn. Eldur var í öllum íbúðum hússins á 1. og 2. hæð hússins…Lesa meira

true

Varað við að glæraísing getur myndast á vegum

Í dag verða snögg umskipti í veðrinu. Vegagerðin varar við því að það mun kólna skart á landinu í dag, fyrst vestantil. Þá myndast glæraísing mjög víða á rennblautum vegunum og sömuleiðis verður hált á stígum og gangstéttum.Lesa meira

true

Skallagrímur vann ÍA í Vesturlandsslagnum

Skallagrímur og ÍA mættust í gærkvöldi í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Borgnesingarnir byrjuðu betur í leiknum og voru fljótlega komnir í 11:3 en Skagamenn voru ekkert á því að gefast upp og minnkuðu muninn í tvö stig eftir rúman sex mínútna leik. Þriggja stiga munur var…Lesa meira

true

FVA komið í átta liða úrslit í Gettu betur

Keppni í 16-liða úrslitum Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna hófst í gær og voru þrjár viðureignir á dagskrá. Kvöldið hófst á viðureign Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Þar hafði FVA betur með 28 stigum gegn 11 og FVA er þar með komið í 8-liða úrslitin. Menntaskólinn í Reykjavík komst einnig áfram með 33-15…Lesa meira

true

Rafmagnslaust í Saurbæ í dag

Rafmagnslaust verður í Saurbæ og Skarðströnd í dag frá klukkan 11:00-15:00, á meðan viðgerðir standa yfir á háspennulínu. Nánari upplýsingar má sjá á rarik.is/rof eða hjá Rarik á Vesturlandi í síma 528-9390.Lesa meira

true

Eldur kom upp í timburhúsi í Borgarnesi í nótt

Rétt fyrir klukkan hálf fimm í nótt var Slökkvilið Borgarbyggðar kallað út í Borgarnesi en kviknað hafði í nýbyggingu við Brákarsund. Að sögn Þorvaldar Hjaltasonar, sjúkraflutningamanns í Borgarnesi sem var á vettvangi, er húsið talsvert skemmt. Vel gekk að slökkva eldinn, talsverður reykur var á tímabili en eldurinn var mestur innan dyra og í þaki.…Lesa meira

true

Ætlar að bjóða upp á skissutíma á netinu

Listakonan Michelle Bird í Borgarnesi ætlar að bjóða upp á ókeypis skissutíma á netinu á milli kl. 16:30 og 17:00 næstu fjóra miðvikudaga. Skissutímarnir henta öllum aldurshópum og er ætlað að hjálpa fólki að skapa á þessum kóvidtímum. Þeir sem hafa áhuga geta svo haldið áfram fyrir 2000 krónur á mánuði. Áhugasamir geta haft samband…Lesa meira

true

Aron Bjarki gengur til liðs við ÍA

Knattspyrnufélag ÍA hefur gert eins árs samning við Aron Bjarka Jósepsson. Aron Bjarki kemur til félagsins frá KR þar sem hann lék 128 leiki í efstu deild og skoraði í þeim átta mörk. Aron Bjarki er 32 ára varnarmaður og hefur leikið með KR frá árinu 2011 en hann var þrisvar sinnum Íslandsmeistari og bikarmeistari…Lesa meira

true

Búast við lægri krafti á hitaveitunni á morgun

Vegna tengivinnu verður lægri þrýstingur á dreifikerfi hitaveitu á Akranesi og Borgarnesi þriðjudaginn 18. janúar. Nánar má sjá um það á Veitur.is bilanir. „Við biðjumst velvirðingar á óhjákvæmilegum óþægindum. Í kuldatíð mælum við með að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni,”…Lesa meira