
Smíðastofa skólans er illa farin eftir eldinn. Reyk frá brunanum lagði um skólann og var tekin sú ákvörðun á hádegi í gær að fella niður kennslu og færa hana í aðrar byggingar í bænum þessa vikuna. Ljósm. vaks.
Unnið að hreinsun og loftræstingu í Brekkubæjarskóla
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Mikið tjón varð í Brekkubæjarskóla á Akranesi fimmtudagskvöldið í síðustu viku en eldur kviknaði í kjallara skólans, í smíðastofu á neðstu hæð í vesturenda hússins, næst sjúkrahúsinu. Húsnæðið hafði staðið ónotað síðustu mánuði og stóð til að að hefja viðgerðir á því sökum rakaskemmda. Ekkert skólahald var daginn eftir og í gær lauk skóla á hádegi vegna mikillar brunalyktar í skólanum. „Eins og börnin ykkar urðu áþreifanlega vör við í dag var of mikil bjartsýni að hefja skólastarf svona fljótt eftir brunann. Um leið og útidyr fóru að vera opnar og umferð um skólann jókst dreifðist óloftið um allt hús. Fjölmargir nemendur og starfsmenn fundu fyrir miklum einkennum í dag og ekki hægt að bjóða upp á að vera í húsinu undir þessum kringumstæðum. Verið er að vinna áfram að hreinsun og loftræstingu og ættu loftgæðin að vera komin í lag eftir helgi.“ Þetta kom fram í pósti frá skólastjórnendum Brekkubæjarskóla sem sendur var til foreldra varðandi breytingu á skipulagi skólastarfs það sem eftir lifir þessarar viku.\r\n\r\nÞar kom einnig fram að kennsla yrði felld niður í dag, þriðjudag, en frístundin fyrir 1.-4. bekk væri opin eins og venjulega. 1.-4. bekkur átti að mæta í skólann alla vikuna á víð og dreif um bæinn frá klukkan 8.10 til 12 en hann verður á fjórum stöðum: Í frístundinni í íþróttahúsinu, Skátaheimilinu við Háholt, gamla Iðnskólanum og gamla Landsbankahúsinu við Akratorg. Nemendur í 5.-10. bekk verða hins vegar í heimaskóla út vikuna og fengu upplýsingar frá bekkjarteymunum í dag hvernig honum yrði háttað.",
"innerBlocks": []
}