{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Rétt fyrir klukkan hálf fimm í nótt var Slökkvilið Borgarbyggðar kallað út í Borgarnesi en kviknað hafði í nýbyggingu við Brákarsund. Að sögn Þorvaldar Hjaltasonar, sjúkraflutningamanns í Borgarnesi sem var á vettvangi, er húsið talsvert skemmt. Vel gekk að slökkva eldinn, talsverður reykur var á tímabili en eldurinn var mestur innan dyra og í þaki. Húsið var í byggingu og er fjögurra íbúða fjölbýlishús. <img class=\"alignnone size-medium wp-image-50391\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/01/Eldur-kom-upp-i-timburhusi-i-Borgarnesi-i-nott1-600x450.jpg\" alt=\"\" />",
"innerBlocks": []
}
Eldur kom upp í timburhúsi í Borgarnesi í nótt - Skessuhorn