Eldur kviknaði í timburhúsi í Borgarnesi í nótt. Ljósm. Heiðar Örn Jónsson

Vel gekk að slökkva eldinn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Eldur sem kom upp í timburhúsi í byggingu í Borgarnesi í nótt var að líkindum búinn að krauma í nokkurn tíma áður en Slökkvilið Borgarbyggðar var kallað út um klukkan fjögur í nótt. Þetta staðfestir Heiðar Örn Jónsson varaslökkviliðsstjóri í samtali við Skessuhorn. Eldur var í öllum íbúðum hússins á 1. og 2. hæð hússins og var eldur töluverður á efri hæðinni. Stuttan tíma tók að slökkva eld á neðri hæð en slökkvistarf á efri hæð og í þaki tók um eina til eina og hálfa klukkustund, að sögn Heiðars. Eftir það tók við töluverð vinna við að slökkva í öllum glæðum en ekki var búið að ljúka því fyrr en um klukkan tíu í morgun. Slökkvilið Borgarbyggðar mun vakta húsið fram eftir degi til að ganga úr skugga um að engin glæða sé í húsinu áður en lögreglan fær vettvang brunans til rannsóknar.\r\n\r\nAð sögn Heiðars gekk slökkvistarf mjög vel miðað við aðstæður en töluvert rok var á svæðinu í nótt og í morgun. Þar sem tókst að halda rúðum heilum þeim megin sem vindurinn kom að húsinu var komið í veg fyrir að blástur kæmist inn í húsið en slíkt hefði magnað upp eldinn.\r\n\r\n<a href=\"https://www.facebook.com/100000154251954/videos/pcb.5579942525354167/607618553672600\">Hér má sjá myndband sem Ómar Örn Ragnarsson tók af vettvangi slökkvistarfs á fimmta tímanum í nótt.</a>",
  "innerBlocks": []
}
Vel gekk að slökkva eldinn - Skessuhorn