
Kíktu í glugga dagsins hér:Lesa meira

Kíktu í glugga dagsins hér:Lesa meira

Allir íslensku háskólarnir sóttu um styrki í verkefnið Samstarf háskóla sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, setti á laggir í haust. Stefnt er að því að úthluta allt að einum milljarði króna á þessu ári, 2022, og sambærilegri upphæð árið 2023 en með þessu er háskólunum veittur fjárhagslegur hvati til að stofna til…Lesa meira

Stjórn körfuknattleiksdeildar ÍA sendi í vikulok frá sér yfirlýsingu vegna óviðeigandi ummæla starfsmanns Hamars í leik Hamars og ÍA í 1. deild karla í vikunni sem leið. „Stjórn körfuknattleiksdeildar ÍA harmar og fordæmir með öllu hegðun starfsmanns á vegum Hamars í leik Hamars og ÍA í 1. deild karla sem átti sér stað í gær.…Lesa meira

Í 47. tölublaði Skessuhorns sem kom út í nóvember var rætt við nýja eigendur að Pulló í Grundarfirði, viðtalið birtist nú hér á vefnum í heild sinni. Sólveig Ásta Bergvinsdóttir og Almar Þorleifsson búa í Grundarfirði þar sem þau hafa komið sér vel fyrir en þau festu kaup á einbýlishúsi við Hrannarstíg í lok árs…Lesa meira

Í tilefni 80 ára afmælis Akraneskaupstaðar á þessu ári mun Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og frú Eliza Reid eiginkona hans koma í opinbera heimsókn á Akranes fimmtudaginn 15. desember. Tekið verður á móti forsetahjónunum við Hvalfjarðargöng og þeim fylgt í bæinn. Fyrsti áfangastaður verður aðsetur bæjarskrifstofunnar að Dalbraut 4 þar sem bæjarstjóri og bæjarfulltrúar…Lesa meira

Starfsmannafélag Slökkviliðs Grundarfjarðar hefur um árabil staðið fyrir fjáröflun með sölu dagatala í Grundarfirði. Í ár er engin breyting þar á en fjármunirnir sem safnast hafa nær eingöngu farið í uppbyggingu á tækjum og búnaði slökkviliðsins og öðrum tengdum málefnum. Til að mynda gaf starfsmannafélagið reykskynjara til allra eldri borgara Grundarfjarðarbæjar í samstarfi við bæjaryfirvöld…Lesa meira

Í gær komu tveir „gamlir“ nemendur Grundaskóla á Akranesi í heimsókn í skólann og ræddu við nemendur og kennara. Hér voru á ferð Ísak Bergmann Jóhannesson og Hákon Arnar Haraldsson en þeir eru báðir atvinnuknattspyrnumenn hjá FC Köbenhavn í Danmörku. Þeir félagar héldu skemmtilegan fyrirlestur á sal, ræddu við nemendur um líf sitt sem atvinnumenn…Lesa meira

Hamar og ÍA mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Hveragerði. ÍA byrjaði betur í leiknum og komst í 2:8 en þegar leið á fyrsta leikhluta voru heimamenn komnir með tíu stiga forystu, 26:16, og við lok hans var staðan svipuð, 32:24 fyrir Hamar. Um miðjan annan leikhluta…Lesa meira

Það var margt um manninn í Kaupfélagi Borgfirðinga við Egilsholt i Borgarnesi í gærkvöldi, en þá var boðið upp á jólakvöld. Inni voru lifandi tónar þar sem Þóra Sif Svansdóttir söng við undirleik Halldórs Hólm. Starfsfólk í versluninni bauð upp á ilmandi vöfflur og heitt súkkulaði og ýmis jólatilboð voru um búðina. Slökkvilið Borgarbyggðar kom…Lesa meira

Lögreglunni á Vesturlandi barst útkall vegna bílslyss klukkan 15:43 í gær. Þá höfðu lent saman fólksbíll og vörubifreið á Akrafjallsvegi neðan við bæinn Vestri-Reyni. Fjölmennt lið björgunarfólks var sent á vettvang en talið var í fyrstu að um alvarlegt slys væri að ræða. Betur fór þó en á horfðist. Að sögn Ásmundar Kristins Ásmundssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns…Lesa meira