Fréttir

true

Tinna Grímarsdóttir Slaufuberi ársins 2022

Fyrsti viðburður Krabbameinsfélags Akraness og nágrennis í Bleikum október var haldinn síðasta miðvikudagskvöld. Þá var gengið frá Krónuplaninu niður að Akratorgi og boðið upp á léttar veitingar í Landsbankahúsinu þar sem starfsemi félagsins var meðal annars kynnt. Að lokum var Slaufuberi ársins 2022 kynntur og það var að þessu sinni Tinna Grímarsdóttir. Var henni þakkað…Lesa meira

true

Kristín í öðru sæti á boðsmóti í Frakklandi

Kraflyftingakonan Kristín Þórhallsdóttir tók þátt í Girl Power boðsmótinu í kraftlyftingum sem fór fram í Frakklandi á laugardaginn. Alls var tólf keppendum boðið að taka þátt á mótinu og voru veitt peningaverðlaun fyrir verðlaunasæti. Sex sterkustu konur franska landsliðsins tóku þátt auk sex keppenda sem eru í fremstu röð í Evrópu. Markmið mótsins var einnig…Lesa meira

true

Haustmót Glímusambands Íslands

Haustmót og æfingabúðir Glímusambands Íslands fóru fram um síðustu helgi á Hvolsvelli. Öflugur hópur ungmenna frá Vesturlandi tóku þátt í helginni og stóðu sig með prýði. Helstu úrslit voru þessi. Þórarinn Páll Þórarinsson GFD bar sigur úr býtum í sínum flokki og er því Haustmótsmeistari hjá 13 ára strákum en þar lenti Mikael Hall Valdimarsson…Lesa meira

true

Breyta reglum um frístundastyrk

Byggðarráð Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 11. október að breyta reglum um frístundastyrk hjá sveitarfélaginu. Styrkurinn nær nú einnig til félagsstarfs, námskeiða, íþrótta og annarra tómstunda sem ekki eru í boði. Þannig verður hægt að nýta styrkinn til að mynda þegar sótt eru námskeið á netinu eða farið á íþróttaæfingar í öðrum sveitarfélögum. Styrkurinn nær…Lesa meira

true

Danskur drengjakór syngur í Reykholti í kvöld

Einn elsti drengjakór Danmerkur heldur tónleika í Reykholtskirkju í kvöld en kórinn var stofnaður árið 1949. Drengjakór Herning er nútímalegur dómkirkjukór með fjölbreytta efnisskrá en á heimasíðu kórsins segir að kórinn sé einn af tveimur atvinnukórum sem til eru í Skandinavíu. Kórstjóri Herning drengjakórsins heitir Charlotte Rowan en tók hún við kórstjórnarsprotanum árið 2020. Tónleikarnir…Lesa meira

true

Skagamenn úr leik í bikarnum eftir tap gegn Selfossi

ÍA og Selfoss mættust í 32-liða úrslitum í VÍS bikar karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór viðureignin fram á Akranesi. Liðin áttust við í deildinni á föstudagskvöldið þar sem Selfoss vann stórsigur 116:87 og því ljóst að Skagamenn ættu erfiðan leik fyrir höndum. Gestirnir byrjuðu betur og voru komnir með sjö stiga forystu eftir…Lesa meira

true

Blóðsöfnun á Akranesi í dag

Blóðbankabíllinn kemur á Akranes í dag og verður við Ráðhúsið frá klukkan 10-17. Næst er bíllinn væntanlegur á Vesturland 1. nóvember þegar bíllinn verður í Borgarnesi við N1 klukkan 10. Hægt er að fylgjast með ferðum bílsins á blodbankinn.isLesa meira

true

Ætla að rafmagnsvæða bílaflotann fyrir árið 2030

Eins og fram kom í leiðara síðasta blaðs hefur fyrirtækið Ragnar og Ásgeir í Grundarfirði ákveðið að festa kaup á rafknúnum flutningabíl og er það eitt ellefu fyrstu fyrirtækja í landinu sem fá slíka bíla frá Volvo Trucks á næsta ári. Þess má geta að stutt er síðan fyrirtækið fékk afhenta sex nýja Volvo dráttarbíla…Lesa meira

true

Stuðningur Strandveiðifélagsins við tillögu um fiskveiðistjórnunarkerfið

Strandveiðifélag Íslands styður fyllilega við tillögu til þingsályktunar frá 15. sept. sl um eflingu félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins sem lögð var fram af Bjarna Jónssyni, ásamt meðflutningsmönnunum Steinunni Þóru Árnadóttur, Jódísi Skúladóttur, Orra Páli Jóhannssyni og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur. Í þingsályktunartillögunni kemur fram að Alþingi felur matvælaráðherra að efla félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins með aukinni hlutdeild þess…Lesa meira

true

Mótmæla fyrirhugaðri lokun Hafró í Ólafsvík

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar fundaði í morgun með matvælaráðherra og fulltrúum úr Matvælaráðuneytinu, þetta tilkynnir Snæfellsbær á Facebook-síðu sveitarfélagsins. Líkt og Skessuhorn greindi frá í síðustu viku mun útibú Hafrannsóknastofnunar í Ólafsvík loka um áramótin. Vegna þeirra tíðinda hefur bæjarstjórn Snæfellsbæjar undanfarið fundað með forstjóra Hafró og þingmönnum kjördæmisins og nú síðast, í morgun, með matvælaráðherra til…Lesa meira