Starfsstöð Hafró í Ólafsvík.

Mótmæla fyrirhugaðri lokun Hafró í Ólafsvík

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Bæjarstjórn Snæfellsbæjar fundaði í morgun með matvælaráðherra og fulltrúum úr Matvælaráðuneytinu, þetta tilkynnir Snæfellsbær á Facebook-síðu sveitarfélagsins.\r\n\r\nLíkt og Skessuhorn <a href=\"https://skessuhorn.is/2022/10/12/hafro-lokar-og-starfsmanni-bodid-ad-segja-sjalfur-upp/\">greindi frá</a> í síðustu viku mun útibú Hafrannsóknastofnunar í Ólafsvík loka um áramótin. Vegna þeirra tíðinda hefur bæjarstjórn Snæfellsbæjar undanfarið fundað með forstjóra Hafró og þingmönnum kjördæmisins og nú síðast, í morgun, með matvælaráðherra til að mótmæla fyrirhugaðri lokun útibúsins.\r\n\r\nÍ <a href=\"https://www.facebook.com/photo?fbid=475103681308978&amp;set=a.291729356313079\">tilkynningunni</a> segir að ráðherra hafi látið það skýrt í ljós á fundinum að vistkerfi Breiðafjarðar sé einstakt og vöktun á því sé mikilvægt verkefni. Þá sé eitt af markmiðum ríkisstjórnarinnar einnig að efla dreifðari byggðir landsins með því að bjóða upp á störf án staðsetningar. Ráðherra bíður nú eftir rökstuðningi frá Hafró vegna lokunarinnar.\r\n\r\nBæjarstjórn Snæfellsbæjar vonast til þess að hætt verði við fyrirhugaða lokun og starfsemi Hafró í Ólafsvík verði heldur efld.",
  "innerBlocks": []
}
Mótmæla fyrirhugaðri lokun Hafró í Ólafsvík - Skessuhorn