
Frá Búðardal. Ljósm. Úr safni.
Breyta reglum um frístundastyrk
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Byggðarráð Dalabyggðar samþykkti á fundi sínum 11. október að breyta reglum um frístundastyrk hjá sveitarfélaginu. Styrkurinn nær nú einnig til félagsstarfs, námskeiða, íþrótta og annarra tómstunda sem ekki eru í boði. Þannig verður hægt að nýta styrkinn til að mynda þegar sótt eru námskeið á netinu eða farið á íþróttaæfingar í öðrum sveitarfélögum.\r\n\r\nStyrkurinn nær til barna í 1-10 bekk Auðarskóla og til þess að eiga rétt á styrknum þarf viðkomandi barn að eiga lögheimili í Dalabyggð.\r\n\r\nFrístundastyrkurinn hefur síðustu ár numið 20.000 krónum á ári og allt að 10.000 krónur eru greiddar út á hvorri önn. Styrkurinn á haustönn 2022 er hins vegar 10.000 krónum hærri en verið hefur og heildarstyrkurinn á þessu ári nemur því 30.000 krónum. Þetta viðbótarfjármagn er styrkur frá Stjórnarráði Íslands til að efla virkni og vellíðan barna og ungmenna. „Með þessari breytingu vonumst við til að ná til fleiri barna, þ.e. barna sem hafa hingað til ekki nýtt sér styrkinn en gera það vonandi núna,“ segir Skúli Hreinn Guðbjörnsson, formaður Byggðarráðs, í samtali við Skessuhorn.",
"innerBlocks": []
}