
Kristín var ánægð með annað sætið. Ljósm. FB síða Kraftlyftingafélag Akraness
Kristín í öðru sæti á boðsmóti í Frakklandi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Kraflyftingakonan Kristín Þórhallsdóttir tók þátt í Girl Power boðsmótinu í kraftlyftingum sem fór fram í Frakklandi á laugardaginn. Alls var tólf keppendum boðið að taka þátt á mótinu og voru veitt peningaverðlaun fyrir verðlaunasæti. Sex sterkustu konur franska landsliðsins tóku þátt auk sex keppenda sem eru í fremstu röð í Evrópu. Markmið mótsins var einnig að vekja athygli á og vera fjáröflun fyrir baráttuna gegn brjóstakrabbameini. Kristín varð í öðru sæti á mótinu og fékk alls 1500 evrur í verðlaunafé. Frábær árangur hjá þessari borgfirsku kraftlyftingakonu sem keppir fyrir Kraflyftingafélag Akraness. Mótið í Frakklandi var hluti af undirbúningi Kristínar fyrir Evrópumeistaramótið sem verður í Póllandi í desember en þar hefur hún titil að verja.",
"innerBlocks": []
}