Lucien Christofis skoraði 19 stig gegn Selfossi. Hér í leik gegn Hamri fyrr í vetur. Ljósm. vaks

Skagamenn úr leik í bikarnum eftir tap gegn Selfossi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "ÍA og Selfoss mættust í 32-liða úrslitum í VÍS bikar karla í körfuknattleik í gærkvöldi og fór viðureignin fram á Akranesi. Liðin áttust við í deildinni á föstudagskvöldið þar sem Selfoss vann stórsigur 116:87 og því ljóst að Skagamenn ættu erfiðan leik fyrir höndum. Gestirnir byrjuðu betur og voru komnir með sjö stiga forystu eftir rúman fimm mínútna leik. ÍA gekk illa að minnka muninn en Davíð Alexander Magnússon sá til þess að forskot gestanna var níu stig þegar hann skoraði þriggja stiga körfu á síðustu andartökum fyrsta leikhluta, staðan 18:27. Heimamenn byrjuðu ekki vel í öðrum leikhluta því þeir skoruðu aðeins tvö stig á fyrstu sjö mínútunum gegn 14 stigum gestanna en náðu síðan aðeins að koma til baka og staðan í hálfleik 32:45 fyrir Selfosspiltum.\r\n\r\nLítið gekk hjá heimamönnum að saxa á forskot gestanna í þriðja leikhluta, munurinn var aldrei minni en tíu stig og staðan 50:63 fyrir Selfossi við flautið. Það sama var síðan upp á teningnum í fjórða og síðasta leikhluta. Skagamenn voru aldrei líklegir til að koma sér inn í leikinn, Selfyssingar hleyptu þeim aldrei nálægt og unnu að lokum öruggan sigur, lokatölur 63:77 Selfossi í vil.\r\n\r\nDavíð Alexander Magnússon var stigahæstur hjá ÍA með 23 stig, Lucien Christofis var með 19 stig og þeir Hjörtur Hrafnsson og Felix Heiðar Magnason með 6 stig hvor. Hjá Selfossi var Arnaldur Grímsson með 15 stig og þeir Gerald Robinson og Srdan Stojanovic með 13 stig hvor.\r\n\r\nSkagamenn hafa því lokið leik í bikarnum og geta nú einbeitt sér að deildinni. Næsti leikur er heimaleikur gegn Ármanni næsta föstudag og hefst klukkan 19.15.",
  "innerBlocks": []
}
Skagamenn úr leik í bikarnum eftir tap gegn Selfossi - Skessuhorn