Ætla að rafmagnsvæða bílaflotann fyrir árið 2030. Ljósm. tfk

Ætla að rafmagnsvæða bílaflotann fyrir árið 2030

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Eins og fram kom í leiðara síðasta blaðs hefur fyrirtækið Ragnar og Ásgeir í Grundarfirði ákveðið að festa kaup á rafknúnum flutningabíl og er það eitt ellefu fyrstu fyrirtækja í landinu sem fá slíka bíla frá Volvo Trucks á næsta ári. Þess má geta að stutt er síðan fyrirtækið fékk afhenta sex nýja Volvo dráttarbíla af öflugustu gerð og á það von á fjórum glænýjum bílum á næstu vikum.\r\n\r\nRagnar og Ásgeir er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið í rekstri í Grundarfirði síðan árið 1970. Að sögn Aldísar Ásgeirsdóttur fjármálastjóra fyrirtæksins var ákveðið að stökkva á þetta tækifæri. Nýi bíllinn muni hafa um 400 km drægni, en vegalengdin Grundarfjörður-Reykjavík er rúmlega 170 km. Lestunartíminn verður nýttur til að hlaða bílinn, en í hraðhleðslu tekur 2,5 klst að fullhlaða. „Við erum afar spennt að fá að vera ein af þeim fyrstu í heiminum til þess að fá afhentan rafknúinn flutningabíl frá Volvo Trucks,“ segir hún. „Þetta er skemmtilegt tækifæri og við höfum enga trú á öðru en að þetta eigi eftir að vera bylting í heimi vöruflutninga. Við ætlum að stefna að því að rafmagnsvæða allan flotann okkar fyrir árið 2030,“ segir hún að lokum.",
  "innerBlocks": []
}
Ætla að rafmagnsvæða bílaflotann fyrir árið 2030 - Skessuhorn