Fréttir

true

Átak sem styttir bið eftir meðferð við kæfisvefni

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að veita Sjúkratryggingum Íslands fjármagn til kaupa á 1.000 svefnöndunarvélum til meðhöndlunar á kæfisvefni, þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins í dag. Ákvörðunin tengist aukinni getu Landspítala til að veita meðferð við kæfisvefni með ráðningu aðstoðarfólks við eininguna sem kemur að þessari þjónustu. Rúmlega 1.000 einstaklingar bíða nú meðferðar og er biðtíminn…Lesa meira

true

Snæfell með fjórða sigurinn í röð

Snæfell og Ármann mættust í 1. deild kvenna í körfuknattleik síðasta miðvikudagskvöld og var leikurinn í Stykkishólmi. Snæfell skoraði fyrstu sjö stigin í leiknum en Ármann tók þá svipaða rispu og bætti um betur með tíu stigum í röð. Eftir það var jafnt á öllum tölum og jafnt eftir fyrsta leikhluta, 14:14. Í stöðunni 20:22…Lesa meira

true

Lilja Rannveig er fyrsti viðmælandi Skinkuhorns

Hlaðvarp Skessuhorns, Skinkuhornið, leit dagsins ljós í síðustu viku en í fyrsta þættinum fara þær Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir og Steinunn Þorvaldsdóttir, blaðamenn Skessuhorns, yfir fyrirhugaðar breytingar á starfsemi Skessuhorns ásamt því að kynna sig sjálfar. Hlaðvarpið mun fara bakvið greiðsluvegg skessuhorns.is í lok október en munu nokkrir þættir vera öllum opnir til að byrja með…Lesa meira

true

Skagamenn nánast fallnir eftir jafntefli á móti Leikni

Leiknir Reykjavík og ÍA mættust í þriðju umferð í úrslitakeppni í neðri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn og fór leikurinn fram í Breiðholti. Bæði lið þurftu nauðsynlega á sigri að halda til að eiga möguleika á því að halda sæti sínu í deild þeirra bestu og því mikið undir. Leiknir komst yfir…Lesa meira

true

Vel sótt landbúnaðarsýning í Laugardalshöll – Myndasyrpa

Helgina 14.-16. október var landbúnaðarsýning í Laugardalshöllinni. Markmið sýningarinnar er að kynna fjölbreytni íslensks landbúnaðar og hreinleika íslenskrar matvælaframleiðslu. Þá gefst bændum og öðrum gestum kostur á að kynna sér nýjustu tæki og tól og hvers kyns aðrar vörur fyrir íslenskan landbúnað. Síðasta landbúnaðarsýning var haldin árið 2018 og þótti takast einstaklega vel. Óhætt er…Lesa meira

true

Skallagrímur með öruggan sigur á Þór Akureyri

Skallagrímur og Þór Akureyri mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Það má með sanni segja að Skallagrímsmenn hafi byrjað af krafti í leiknum og nánast gert út um hann strax því þeir komust í 18:2 eftir tæpan fimm mínútna leik. Þórsarar náðu þó síðan…Lesa meira

true

Sveitarfélög með færri en þúsund íbúa greiða meira

Guðmundur Kristján Óskarsson, dósent við Háskólann á Akureyri, hefur síðustu misseri unnið að rannsókn um úrgangsmál á Íslandi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að fámenn sveitarfélög, með þúsund íbúa og færri, greiða margfalt meira fyrir hirðu úrgangs en þau stærri og fjölmennari. Þar segir að árið 2020 hafi minni sveitarfélög greitt að meðaltali 56.000 kr.- á ári…Lesa meira

true

Ungmennakórinn Schaumberger syngur á Akranesi

Ungmennakórinn Schaumberger frá Bückeburg í Þýskalandi, kemur í heimsókn til Akraness þann 20. október og býður til tónleika í safnaðarheimilinu Vinaminni. Sérstaða þessa kórs er óvenjuleg raddsetning þar sem tenórröddin er sungin af djúpum altröddum, sem gefur kórnum einstaklega mjúkan og fallegan hljóm. Kórinn hefur á undanförnum árum haldið tónleika víða um heim, í Mið-Evrópu,…Lesa meira

true

,,Mamma reið út þangað til hún var gengin átta mánuði á leið með mig“

Litið í kaffi til Þórdísar Fjeldsted Þorsteinsdóttur reiðkennara, tamningakonu og rútubílstjóra Þórdís Fjeldsted Þorsteinsdóttir er reiðkennari og tamningakona búsett að Ölvaldsstöðum í Borgarfirði. Þórdís sleit bernskuskónum á Ölvaldsstöðum en foreldrar hennar, Guðrún Fjeldsted og Þorsteinn Guðlaugsson keyptu Ölvaldsstaði 4 í kringum árið 1980. Þau sinntu tamningum og þjálfun hrossa auk þess að reka reiðskóla og…Lesa meira

true

Opin vika í Tónlistarskólanum á Akranesi endar í dag

Vikuna 10-14 október var opin vika í Tónlistarskólanum á Akranesi í tilefni 80 ára afmælis Akraneskaupsstaðar. Bauðst nemendum þá að kynnast nýjum hljóðfærum, mismunandi tónlistarstílum og miðlunarmöguleikum í hinum ýmsu smiðjum og fyrirlestrum. Jónína Erna Arnardóttir skólastjóri segir opnar vikur mikilvægar fyrir nemendur en þar býðst þeim tækifæri til að prófa sig áfram og kynnast…Lesa meira