Keith Jordan Jr. var öflugur á móti Þór og var með 35 stig. Ljósm. glh

Skallagrímur með öruggan sigur á Þór Akureyri

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skallagrímur og Þór Akureyri mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í Fjósinu í Borgarnesi. Það má með sanni segja að Skallagrímsmenn hafi byrjað af krafti í leiknum og nánast gert út um hann strax því þeir komust í 18:2 eftir tæpan fimm mínútna leik. Þórsarar náðu þó síðan áttum og héldu í við heimamenn í stigaskorun en staðan eftir fyrsta leikhluta 28:11 fyrir Skallagrími. Þór kom síðan af krafti inn í annan leikhluta og náði að minnka muninn í 31:27 eftir fjórar mínútur en þá gáfu Skallagrímsmenn aftur í, skoruðu næstu sjö stig og komu sér í þægilega stöðu á ný. Þegar flautað var til leikhlés var munurinn orðinn 14 stig og ljóst að róðurinn gæti orðið erfiður fyrir gestina, staðan 53:39 fyrir Sköllunum.\r\n\r\nÍ þriðja leikhluta juku heimamenn forystuna jafnt og þétt og náðu tuttugu stiga forskoti undir lok hans en staðan 80:57 þegar flautan gall og aðeins spurning um hve sigurinn yrði stór. Í fjórða leikhluta slógu Skallagríms menn ekkert af og bættu enn við forskotið, lokatölur 106:74 fyrir Skallagrími.\r\n\r\nStigahæstir hjá Skallagrími voru þeir Keith Jordan Jr. sem var með 35 stig, Davíð Guðmundsson var með 21 stig og Bergþór Ægir Ríkharðsson með 13 stig. Hjá Þór var Tarojae Brake með 23 stig, Smári Jónsson með 14 stig og Kolbeinn Fannar Gíslason með 12 stig.\r\n\r\nNæsti leikur Skallagríms er á móti Hrunamönnum næsta föstudag á Flúðum og hefst leikurinn klukkan 19.15.",
  "innerBlocks": []
}
Skallagrímur með öruggan sigur á Þór Akureyri - Skessuhorn