
Skagamenn þurfa að öllum líkindum að spila í Lengjudeildinni á næsta ári. Ljósm. Lárus Árni Wöhler
Skagamenn nánast fallnir eftir jafntefli á móti Leikni
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Leiknir Reykjavík og ÍA mættust í þriðju umferð í úrslitakeppni í neðri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn og fór leikurinn fram í Breiðholti. Bæði lið þurftu nauðsynlega á sigri að halda til að eiga möguleika á því að halda sæti sínu í deild þeirra bestu og því mikið undir. Leiknir komst yfir strax á þriðju mínútu með marki frá Emil Berger en Skagamenn voru fljótir til svars því þremur mínútum síðar jafnaði Aron Bjarki Jósepsson með skalla eftir aukaspyrnu frá Steinari Þorsteinssyni. Leiknir komst síðan aftur yfir í leiknum á 26. mínútu þegar Emil átti sendingu á fjærstöng Skagamanna þar sem Bjarki Aðalsteinsson var einn og óvaldaður og skoraði auðveldlega með skalla. Rétt fyrir lok fyrri hálfleiks var jafnt enn á ný þegar Steinar átti góða sendingu á Viktor Jónsson sem skallaði boltann í netið af miklu öryggi og jafnt í hálfleik, 2-2.\r\n\r\nSeinni hálfleikur var ekki eins fjörugur og sá fyrri en fyrsta færið fékk títtnefndur Emil sem átti gott skot að marki eftir tíu mínútna leik sem Árni Snær Ólafsson varði meistaralega í stöngina en hann var aftur kominn í markið eftir langa fjarveru. Lítið markvert gerðist eftir þetta fyrir utan nokkur hálffæri og leikurinn rann út í sandinn án mikilla tíðinda, lokatölur því 2-2 og ljóst að bæði ÍA og Leiknir eru nánast fallin úr Bestu deildinni. ÍA er í neðsta sæti deildarinnar með 19 stig og er sex stigum frá öruggu sæti þegar einungis tvær umferðir eru eftir. ÍA hefur verið í efstu deild síðustu fjögur tímabil eða allt frá því liðið vann fyrstu deildina árið 2018. Í viðtali eftir leik staðfesti Jón Þór Hauksson þjálfari ÍA að hann yrði áfram þjálfari Skagamanna á næstu leiktíð hvort sem liðið fellur úr deildinni eður ei.\r\n\r\nNæsti leikur ÍA og síðasti heimaleikur sumarsins er gegn ÍBV næsta laugardag og hefst klukkan 14.",
"innerBlocks": []
}