Snæfellskonur eru í góðum gír þessa dagana. Ljósm. sá

Snæfell með fjórða sigurinn í röð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Snæfell og Ármann mættust í 1. deild kvenna í körfuknattleik síðasta miðvikudagskvöld og var leikurinn í Stykkishólmi. Snæfell skoraði fyrstu sjö stigin í leiknum en Ármann tók þá svipaða rispu og bætti um betur með tíu stigum í röð. Eftir það var jafnt á öllum tölum og jafnt eftir fyrsta leikhluta, 14:14. Í stöðunni 20:22 fljótlega í öðrum leikhluta náðu heimakonur góðum kafla, skoruðu ellefu stig án svars frá gestunum og staðan í hálfleik 33:25 fyrir Snæfelli.\r\n\r\nÁrmann minnkaði muninn í tvö stig í byrjun þriðja leikhluta og baráttan hélt áfram í leiknum. Undir lok leikhlutans var Snæfell komið með ellefu stiga forskot en Ármann átti síðasta orðið og minnkaði muninn í sex stig, staðan 43:37 fyrir fjórða og síðasta leikhluta. Ármann hélt áfram að klóra í bakkann og reyndi að nálgast Snæfell en heimakonur náðu aftur góðri forystu um miðjan leikhlutann, 58:47. Eftir þetta komust gestirnir aldrei það nálægt að spenna kæmi í leikinn á ný og Snæfell vann öruggan átta stiga sigur að lokum, lokatölur 62:54.\r\n\r\nCheah Rael Whitsitt var stigahæst í liði Snæfells með 19 stig og 20 fráköst, Rebekka Rán Karlsdóttir var með 16 stig og Preslava Koleva með 13 stig og 10 fráköst. Hjá Ármanni var Schekinah Bimpa með 21 stig, Jónína Þórdís Karlsdóttir með 11 stig og Viktoría Líf Önnudóttir Schmidt með 10 stig.\r\n\r\nStaðan í deildinni er nú þannig að Stjarnan er efst með tíu stig og Snæfell og Þór Akureyri jöfn í öðru og þriðja sæti með átta stig. Næsti leikur Snæfells er á móti Hamri/Þór á miðvikudaginn í Stykkishólmi og hefst klukkan 19.15.",
  "innerBlocks": []
}
Snæfell með fjórða sigurinn í röð - Skessuhorn