Fréttir

true

Fossinn áttavilltur

Appelsínugular og rauðar viðvaranir voru í gildi síðasta sunnudag víðs vegar um landið. Á Vesturlandi voru viðvaranir gular í þetta skipti enda spáin ekki eins slæm hérna. Þó nokkur skip leituðu þó til hafnar í Grundarfirði og var þétt setið á höfninni á sunnudaginn. Veðrið var þó til friðs í Grundarfirði en stíf norðanátt var…Lesa meira

true

Opinn fjarfundur – Vörðum leiðina saman

Innviðaráðuneytið , í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, býður íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman. Opinn fjarfundur fyrir íbúa á Vesturlandi verður haldinn 26. október milli kl 15-17. Fundurinn er haldinn í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams en skráning fer fram hér en henni lýkur 25. október. Þátttakendur fá boð í tölvupósti til…Lesa meira

true

Snæfell með góðan sigur á Tindastól

Tindastóll og Snæfell áttust við í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Síkinu á Sauðárkróki. Leikurinn hófst á fjörugum nótum en fljótlega náðu gestirnir yfirhöndinni og voru með ellefu stiga forystu eftir fyrsta leikhluta, 12:23. Leikmönnum Tindastóls gekk illa að ráða við erlenda leikmenn Snæfells auk þess sem Rebekka…Lesa meira

true

Opin vika í Tónlistarskólanum á Akranesi

Þessa vikuna er opin vika í Tónlistarskólanum á Akranesi.  Þá fellur hefðbundin kennsla niður en nemendur skrá sig á alls kyns smiðjur, fyrirlestra og skemmtilegheit. Flestar smiðjurnar eru einungis ætlaðar nemendum skólans og t.d. geta söngnemendur skráð sig á ukulelenámskeið og gítarleikarar á söngnámskeið, það verða trommuhringir, spurningakeppnir, kór, tónsmíðakennsla og margt fleira og allir…Lesa meira

true

Ekki pláss fyrir dósatalningarvélar á Sólbakka í Borgarnesi

Á fundi velferðarnefndar Borgarbyggðar þriðjudaginn 4. október kom fram að Vinnueftirlitið hafi úrskurðað dósatalningarvélar sem voru í notkun í dósamóttökunni í Brákarey nothæfar með ákveðnum öryggisuppfærslum. Í núverandi aðstöðu dósamóttökunnar á Sólbakka er ekki pláss til að nota vélarnar. Endurvinnslan telur óheppilegt að ekki sé hægt að taka við ótöldu og hefur rætt að Borgarbyggð…Lesa meira

true

Fyrsti sigur Skallagríms í kaflaskiptum leik

Fjölnir og Skallagrímur áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í Dalhúsum í Grafarvogi. Skallagrímur var án sigurs eftir fyrstu tvo leikina í deildinni á meðan Fjölnir var með einn sigur og eitt tap. Skallagrímsmenn mættu afar grimmir til leiks og komust í 0:13 eftir fjögurra mínútna leik.…Lesa meira

true

Skagamenn lögðu Hamar að velli

ÍA og Hamar mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var viðureignin í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta, gestirnir þó ívið sterkari og náðu mest níu stiga forystu áður en heimamenn komu til baka og löguðu stöðuna aðeins fyrir lok leikhlutans, staðan 23:27 fyrir…Lesa meira

true

Skagamenn halda í vonina um að halda sér uppi

ÍA og Fram mættust í úrslitakeppni neðri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Akranesvelli. Skagamenn þurftu á sigri að halda til að eiga von um sæti í Bestu deildinni að ári á meðan Fram siglir lygnan sjó í deildinni. Skagamenn komust yfir eftir korters leik þegar Eyþór Aron Wöhler…Lesa meira

true

Leggja grunn að fagháskólanámi í leikskólafræðum

Ráðherrarnir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Ásmundur Einar Daðason og Guðmundur Ingi Guðbrandsson hafa undirritað samstarfsyfirlýsingu um þróun og innleiðingu fagháskólanáms í leikskólafræðum á landsvísu. Auk ráðuneytanna koma Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri og Samband íslenskra sveitarfélaga að yfirlýsingunni, en markmið hennar er að efla menntun starfsfólks leikskóla um land allt. “Fagháskólastig í leikskólafræðum er spennandi valkostur…Lesa meira