
Almar Örn var með 13 stig á móti Fjölni. Ljósm. af FB síðu Skallagríms
Fyrsti sigur Skallagríms í kaflaskiptum leik
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fjölnir og Skallagrímur áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og fór leikurinn fram í Dalhúsum í Grafarvogi. Skallagrímur var án sigurs eftir fyrstu tvo leikina í deildinni á meðan Fjölnir var með einn sigur og eitt tap. Skallagrímsmenn mættu afar grimmir til leiks og komust í 0:13 eftir fjögurra mínútna leik. Fyrsta stig Fjölnismanna kom ekki fyrr en á fimmtu mínútu og góð forysta gestanna staðreynd eftir fyrsta leikhluta, staðan 10:23. Skallagrímur var ekki á þeim gulu stuttbuxunum að gefa neitt eftir í öðrum leikhluta og jók muninn jafnt og þétt. Um miðjan leikhlutann var meira en helmings munur á liðunum, 18:37, og þegar flautað var til hálfleiks var 28 stiga munur gestunum í vil, 24:52.\r\n\r\nÞegar komið var í miðjan þriðja leikhluta var staðan 39:65 en þá vildu heimamenn ekki vera minni menn en gestirnir og skoruðu einnig 13 stig í röð, staðan 52:65. Lítið breyttist fram að lokum leikhlutans og staðan fyrir fjórða og síðasta leikhlutann þrettán stiga munur Skallagrími í vil, 58:71. Fjölnismenn byrjuðu síðan betur og höfðu náð að minnka muninn í átta stig eftir tæpan þriggja mínútna leik. Þá sögðu Skallagrímsmenn stopp og bættu við forskotið jafnt og þétt næstu mínútur. Þar með lögðu þeir grunninn að góðum sigri og þeim fyrsta í deildinni á þessu tímabili, lokatölur í kaflaskiptum leik 75:89 fyrir Skallagrími.\r\n\r\nHjá Skallagrími var nýi bandaríski leikmaðurinn Keith Jordan Jr. kominn með leikheimild og var með 28 stig og 12 fráköst, Jason Ricketts var með 14 stig og Almar Örn Björnsson með 13 stig. Hjá Fjölni var Arturo Rodriguez með 31 stig, Kendall Scott með 13 stig og 17 fráköst og Rafn Kristján Kristjánsson með 13 stig.\r\n\r\nNæsti leikur Skallagríms er næsta föstudag gegn Þór Akureyri í Borgarnesi og hefst klukkan 19.15.",
"innerBlocks": []
}