Opin vika í Tónlistarskólanum á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Þessa vikuna er opin vika í Tónlistarskólanum á Akranesi.  Þá fellur hefðbundin kennsla niður en nemendur skrá sig á alls kyns smiðjur, fyrirlestra og skemmtilegheit. Flestar smiðjurnar eru einungis ætlaðar nemendum skólans og t.d. geta söngnemendur skráð sig á ukulelenámskeið og gítarleikarar á söngnámskeið, það verða trommuhringir, spurningakeppnir, kór, tónsmíðakennsla og margt fleira og allir nemendur ættu að finna eitthvað við sitt hæfi og áhugasvið.\r\n\r\nFlestar smiðjurnar eru í umsjón kennara skólans, en skólinn býr yfir miklum mannauði. „Af tilefni 80 ára afmælis Akraneskaupstaðar þá höfum við þó boðið nokkrum góðum gestum til okkar og viljum bjóða foreldrum og íbúum að koma og njóta með okkur nokkurra opinna viðburða þar sem allir eru velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir,“ segir í tilkynningu frá skólanum. Í gær, mánudaginn 10. október hélt Ólafur Páll Gunnarsson, tónlistarsérfræðingur Rásar 2, erindið <em>Tæpt á tónlistarsögu Akraness. </em>\r\n\r\nNæstu opnu smiðjur/fyrirlestrar eru:\r\n\r\nÞriðjudaginn 11. október kl. 18:00 <em>Framkoma og glíman við framkomukvíðann</em>, Hallgrímur Ólafsson (Halli Melló) leikari.\r\n\r\nMiðvikudaginn 12. október kl. 16:00 <em>Gítarinn og heimstónlist</em>, Ásgeir Ásgeirsson gítarleikari og sama dag kl. 17:00 <em>opið harmonikkuball</em> í umsjón Rutar Berg og Sporsins.\r\n\r\nFimmtudaginn 13. október kl. 18:00 <em>Tónlistarstund með spjalli</em> með Davíð Þór Jónssyni píanóleikara.\r\n\r\n„Við vonum að fólk sjái sér fært að taka þátt í þessu með okkur og hvetjum nemendur líka til að vera duglegir að koma í opnu viðburðina auk þeirra vinnustofa sem eru bara fyrir þá,“ segir jafn framt í tilkynningu frá skólanum.",
  "innerBlocks": []
}
Opin vika í Tónlistarskólanum á Akranesi - Skessuhorn