
Skagapiltar voru meira en til í myndatöku eftir leik. Ljósm. vaks
Skagamenn lögðu Hamar að velli
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "ÍA og Hamar mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var viðureignin í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta, gestirnir þó ívið sterkari og náðu mest níu stiga forystu áður en heimamenn komu til baka og löguðu stöðuna aðeins fyrir lok leikhlutans, staðan 23:27 fyrir Hamar. Skagamenn náðu að jafna metin fljótlega í öðrum leikhluta og jafnt var á flestum tölum en Júlían Duranona átti síðasta orðið þegar hann setti niður þrist og staðan 44:41 fyrir ÍA í hálfleik.\r\n\r\nBaráttan hélt áfram í þriðja leikhluta, Skagamenn náðu góðum kafla þegar þeir komust í 59:52 um miðjan leikhlutann og voru með fimm stiga forskot fyrir síðasta leikhlutann, staðan 64:59. Heimamenn byrjuðu betur í fjórða leikhluta og voru komnir með tíu stiga forystu eftir tæpar fimm mínútur, 78:68. Gestirnir gerðu hvað þeir gátu til að reyna að minnka muninn og náðu honum niður í fjögur stig þegar tuttugu sekúndur voru eftir af leiknum. En Skagamenn áttu síðasta orðið á vítalínunni og tryggðu sér góðan sigur, 93:86.\r\n\r\nLucien Christofis var öflugur í liði ÍA með 32 stig, Jalen Dupree var með 24 stig og 11 fráköst og Tómas Andri Bjartsson með 17 stig. Hjá Hamri var Jose Aldina með 32 stig, Ragnar Nathanaelsson með 20 stig og 15 fráköst og Mirza Sarajlija með 12 stig.\r\n\r\nNæsti leikur ÍA í deildinni er á móti Selfossi næsta föstudag í Vallaskóla á Selfossi og hefst klukkan 19.15.",
"innerBlocks": []
}