Fyrrum húsnæði dósamóttökunnar í Brákarey. Ljósm. mm

Ekki pláss fyrir dósatalningarvélar á Sólbakka í Borgarnesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á fundi velferðarnefndar Borgarbyggðar þriðjudaginn 4. október kom fram að Vinnueftirlitið hafi úrskurðað dósatalningarvélar sem voru í notkun í dósamóttökunni í Brákarey nothæfar með ákveðnum öryggisuppfærslum. Í núverandi aðstöðu dósamóttökunnar á Sólbakka er ekki pláss til að nota vélarnar. Endurvinnslan telur óheppilegt að ekki sé hægt að taka við ótöldu og hefur rætt að Borgarbyggð láti móttökuna af hendi til annarra aðila ef ekki er mögulegt að nýta vélarnar svo hægt sé að telja á staðnum.\r\n\r\nÞegar byrjað var að bjóða upp á verndaða vinnu fyrir fatlað fólk var algengt að sveitarfélög tækju að sér dósamóttöku til að hafa einföld en viðvarandi verkefni. Í dag eru 56 móttökustöðvar um allt land en aðeins þrjár þeirra eru verndaður vinnustaður fatlaðra, þ.e. í Borgarnesi, á Akranesi og í Vestmannaeyjum. Annars staðar eru það aðilar eins og flutningamiðstöðvar, björgunarsveitir eða íþróttafélög sem sjá um dósamóttöku.\r\n\r\nÍ bókun velferðarnefndar segir að það sé mikilvægt að Borgarbyggð bjóði upp á fjölbreytta verndaða vinnu sem henti þeim sem á þurfa að halda og hafi mismunandi þarfir einstaklinganna að leiðarljósi. „Hluti af hugmyndafræði með vernduðum vinnustöðum er að koma í veg fyrir einangrun og efla félagslega virkni og þroska. Útfærsla á verndaðri vinnu getur verið margskonar, m.a. þátttaka á almennum vinnumarkaði með einstaklingsbundnum stuðningi. Nefndin telur mikilvægt að móta skýra framtíðarsýn í atvinnumálum fatlaðra i samhengi við þá stefnumótunarvinnu sem framundan er í málaflokknum.“",
  "innerBlocks": []
}
Ekki pláss fyrir dósatalningarvélar á Sólbakka í Borgarnesi - Skessuhorn