
F.v. Grundarfoss og Mógilsfoss. Ljósm. tfk
Fossinn áttavilltur
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Appelsínugular og rauðar viðvaranir voru í gildi síðasta sunnudag víðs vegar um landið. Á Vesturlandi voru viðvaranir gular í þetta skipti enda spáin ekki eins slæm hérna. Þó nokkur skip leituðu þó til hafnar í Grundarfirði og var þétt setið á höfninni á sunnudaginn. Veðrið var þó til friðs í Grundarfirði en stíf norðanátt var fram eftir morgni og það lægði svo eftir hádegi. Fossarnir Grundarfoss og Mógilsfoss renna á móti norðanáttinni og þegar svona viðrar verða þeir oft töluvert áttavilltir og eiga það til að renna upp í móti frekar en niður klettabeltið. Þannig var staðan á sunnudag er Mógilsfoss sem er hægra megin á myndinni átti erfitt með leið sína til sjávar.",
"innerBlocks": []
}