Eyþór Aron skoraði tvö mörk í leiknum á móti Fram. Hér fagnar hann sigurmarkinu ásamt Árna Salvari Heimissyni og Kaj Leó. Ljósm. Lárus Árni Wöhler

Skagamenn halda í vonina um að halda sér uppi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "ÍA og Fram mættust í úrslitakeppni neðri hluta Bestu deildar karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Akranesvelli. Skagamenn þurftu á sigri að halda til að eiga von um sæti í Bestu deildinni að ári á meðan Fram siglir lygnan sjó í deildinni. Skagamenn komust yfir eftir korters leik þegar Eyþór Aron Wöhler fékk sendingu inn fyrir vörn Fram, keyrði inn í teiginn og lagði boltann snyrtilega fram hjá markmanni Framara. Skagamaðurinn Albert Hafsteinsson í búningi Fram jafnaði metin tæpum tíu mínútum síðar þegar boltinn fór af þremur varnarmönnum ÍA til hans og lagði hann boltann í netið. Veðurguðirnir minntu svo á sig þegar var eins og hellt væri úr fötu áður en Fram komst yfir í leiknum þegar Guðmundur Magnússon renndi boltanum í autt markið eftir klaufagang í vörn ÍA, staðan í hálfleik 1-2 fyrir gestina.\r\n\r\nJón Þór Hauksson þjálfari Skagamanna setti hárblásarann á fullan styrk í hálfleik og lét menn heyra það. Það virtist virka því varamaðurinn Ingi Þór Sigurðsson jafnaði metin eftir rúman tíu mínútna leik þegar hann fékk stungusendingu frá Benedikt V. Warén og skoraði fram hjá Ólafi Íshólm, markmanni Fram. Átta mínútum síðar kom síðan sigurmarkið. Kaj Leó Í Bartalstovu tók hornspyrnu á fjærstöngina sem Viktor Jónsson skallaði í jörðina, upp í slána og svo til Eyþórs Arons sem skallaði boltann í netið við mikinn fögnuð heimamanna. Fram reyndi hvað þeir gátu að jafna metin en vörn Skagamanna hélt þetta út og heimamenn unnu afar mikilvægan sigur, lokastaðan 3-2 fyrir ÍA.\r\n\r\nÍA náði með þessum sigri að nálgast FH og Leikni sem mætast í dag í Kaplakrika en ÍA er nú með 18 stig, FH 19 og Leiknir 20 stig. Næsti leikur Skagamanna er næsta laugardag á móti Leikni á Domusnovavellinum í Breiðholti og hefst klukkan 14.",
  "innerBlocks": []
}
Skagamenn halda í vonina um að halda sér uppi - Skessuhorn