Fréttir

true

Samevrópsk íþrótta- og hreyfivika í gangi

Íþrótta- og hreyfivika Evrópu (European Week of Sport) er haldin 23. til 30. september ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum. Evrópubúar sameinast í vikunni undir slagorðinu #BeActive. Skipulagðir viðburðir eru í a.m.k. fjórum sveitarfélögum á Vesturlandi, tileinkaðir vikunni, þ.e. á Akranesi, Stykkishólmi, Grundarfirði og í Snæfellsbæ. Heilsueflandi samfélag á Akranesi í samstarfi við ÍA leggur…Lesa meira

true

Hlutu heiðursviðurkenningu fyrir langa setu í sveitarstjórnum

Á haustþingi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, sem lauk í gær, voru nokkrir sveitarstjórnarfulltrúar heiðraðir fyrir langa setu í sveitarstjórnum. Fjórir fengu viðurkenninguna í ár en það voru þeir Finnbogi Leifsson, sem setið hefur í sveitarstjórn samfleytt í 37 ár, síðari hluta þess tíma fyrir Borgarbyggð. Halldór Jónsson hefur starfað í sveitarstjórn Eyja- og Miklaholtshrepps í…Lesa meira

true

Þórsnesþing, Stykkishólmsbær eða Sveitarfélagið Stykkishólmur

Eins og greint var frá í síðasta tölublaði Skessuhorns óskaði sameinað sveitarfélag Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar í byrjun júlí eftir eftir því við Örnefnanefnd að hún tæki til umsagnar tillögur að nafni á hið sameinaða sveitarfélag. Auglýst var eftir tillögum að nafni og rann út frestur til að skila inn tillögum 1. júní. Alls bárust 72…Lesa meira

true

Níðið um Snorra á fyrirlestri í Snorrastofu

Þriðjudaginn 27. september kl. 20 flytur Úlfar Bragason, prófessor eremitus, fyrirlestur í Snorrastofu í Reykholti, sem ber yfirskriftina; „Harðmúlaðr er Skúli: Níðið um Snorra“. Fyrirlesturinn, sem er hluti af fyrirlestraröðinni „Minningarfyrirlestur um Snorra Sturluson,“ er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. Snorri Sturluson var í Noregi á árunum 1218–1220 eftir því sem Íslendinga saga Sturlu…Lesa meira

true

Miðstjórn ASÍ fordæmir forgangsröðun ríkisstjórnar í heilbrigðismálum

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands lýsir í ályktun sinni yfir þungum áhyggjum af stöðu heilbrigðismála í landinu og fordæmir þá forgangsröðun sem birtist í fjármálafrumvarpi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur. „Dag hvern berast fregnir af ófremdarástandi í heilbrigðiskerfi landsmanna. Þrátt fyrir áköll starfsfólks og sérfræðinga hafa stjórnvöld árum saman kosið að leiða hjá sér augljósan vanda og skella skollaeyrum…Lesa meira

true

Bílasafnið í Brákarey verður áfram lokað

Fulltrúar úr stjórn Fornbílafjelags Borgarfjarðar áttu nýverið fund með embættismönnum og fulltrúum úr sveitarstjórn Borgarbyggðar um stöðu húsnæðismála félagsins í Brákarey. Bílasafn félagsins hefur verið lokað frá því í febrúar á síðasta ári þegar því var lokað vegna ónógra eldvarna. „Það eru engar lausnir á borðinu eins og er. Afstaða núverandi sveitarstjórnar varðandi lokun gamla…Lesa meira

true

Snæfell og Skallagrímur mætast í VÍS bikarnum

Í dag var dregið í 16 liða úrslitum í VÍS bikarkeppni karla og kvenna í körfuknattleik og voru fjögur Vesturlandslið í pottinum. Vesturlandsslagur verður í bikarkeppni karla þar sem Snæfell og Skallagrímur mætast og þá mæta ÍA eða Selfoss Hetti eða Þór Þorlákshöfn. Þá mætir kvennalið Snæfells liði Breiðabliks en þessi lið mættust í undanúrslitum…Lesa meira

true

Vilja auka hlut strandveiða í áföngum

Fimm þingmenn Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um eflingu strandveiða. Fyrsti flutningsmaður er Bjarni Jónsson þingmaður í NV kjördæmi. „Þingsályktunartillögunni er ætlað að stuðla að eflingu félagslega hluta fiskveiðistjórnunarkerfins með því að festa strandveiðar betur í sessi með auknum hlut í veiðiheimildum. Í tillögunni er lagt til að stækka í…Lesa meira

true

Mánaðarleg útgjöld heimila hafa hækkað um 25-127 þúsund krónur á einu ári

Verðlagseftirlit ASÍ hefur tekið saman dæmi um hvernig verðlagshækkanir á liðnu ári (ágúst ’21-’22) geta birst í mánaðarlegum útgjöldum heimilanna. Dæmin sýna hvernig hækkanir á nokkrum helstu kostnaðarliðum (húsnæði, samgöngum, matvöru og heimilisbúnaði) birtast í mánaðarlegum útgjöldum hjá mismunandi heimilisgerðum. Um þessar mundir verða heimili fyrir þungum áhrifum af verðlagshækkunum og áhrifum af hækkun vaxta.…Lesa meira

true

Fjögur einbýlishús rísa í sömu götu í Borgarnesi

Nokkrar skipulagðar lóðir hafa staðið auðar í götunni Stöðulsholti í Borgarnesi í sautján ár, en nú rísa þar fjögur hús á samliggjandi lóðum. Byggingaraðilar eru annars vegar Tekta sem byggir nú tvö 150 fermetra einbýlishús í götunni en einnig hefur slíkt hús nú þegar risið á vegum fyrirtækisins á Hvanneyri. Húsin hafa öll verið auglýst…Lesa meira