Svipmynd úr félagsaðstöðu Fornbílafjelagsins í gærukjallara fyrrum sláturhúss í Brákarey. Ljósm. úr safni/mm.

Bílasafnið í Brákarey verður áfram lokað

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fulltrúar úr stjórn Fornbílafjelags Borgarfjarðar áttu nýverið fund með embættismönnum og fulltrúum úr sveitarstjórn Borgarbyggðar um stöðu húsnæðismála félagsins í Brákarey. Bílasafn félagsins hefur verið lokað frá því í febrúar á síðasta ári þegar því var lokað vegna ónógra eldvarna. „Það eru engar lausnir á borðinu eins og er. Afstaða núverandi sveitarstjórnar varðandi lokun gamla sláturhússins er óbreytt frá fyrri sveitarstjórn. Fram kom það sem við höfum svo sem verið búnir að átta okkur á að okkur verður ekki heimilað að hafa neina starfsemi í kjallaranum eða réttinni og því verður safnið áfram lokað sem og félagsaðstaða okkar,“ segir í bréfi sem Skúli Ingvarsson formaður fornbílafélagsins sendi félagsmönnum sínum nýverið.\r\n\r\nÁfram geta félagsmenn haft bílana geymda inni til næsta vors a.m.k. og farið inn og tekið út bíla eða sett inn bíla eins og verið hefur eftir að lokunin kom til. Öll umferð um húsnæðið í fjárréttinni og gærukjallaranum verður því með óbreyttu sniði og tilkynningarskyld til forstöðumanns Áhaldahússins hverju sinni.\r\n\r\nÁ fundinum var lagt til að félagið setjist niður með fulltrúa Borgarbyggðar og ræði bætur til félagsins vegna riftunar leigusamnings. „Eins og þið þekkið hefur húsaleigusamningi okkar við Borgarbyggð verið rift. Samt sem áður fáum við að hafa bílana áfram inni bæði í skemmunni og kjallaranum alla vega í vetur,“ skrifar Skúli Ingvarsson.",
  "innerBlocks": []
}